Pylsuvísitalan

Lengi vel heldust í hendur verð á pylsu með öllu og strætófargjald.  Núna kostar pylsan 320 kr. en strætó 350 kr.  Pylsan hefur reyndar nýverið hækkað í verði.  Matur hækkar víst líka eins og eldsneyti.

Hugsa samt að Íslendingar myndu mun fyrr hætta að ferðast með strætó en að neita sér um eina á Bæjarinz Beztu niður í miðbæ.  Fastur punktur í lífi margra höfuðborgarbúa.

Get ekki sagt að það sé sami sjarminn að kjamsa á pylsu í verslunarmiðstöðvum og niður í miðbæ.  Vantar sjávarniðinn og fuglana flögrandi í kring í leit að brauði.  Svo er hálf stemningin að hanga helfrosinn í röðinni og röfla við nærstadda.

Gamall grautur í nýrri skál

Borgarahreyfingin II komin á koppinn.  Heitir reyndar Dögun og samanstendur af alls kyns liði frá Borgarahreyfingunni, Hreyfingunni, Frjálslyndum og Stjórnlagaráði.

Æ, ég veit það ekki.  Er þessi hópur eitthvað skárri en Björt Framtíð?  Af hverju ekki bara eitthvað glænýtt framboð án allra gömlu andlitanna?

Svo endar þetta lið oftar en ekki í sömu spillingarsúpunni og fyrri valdhafar.  Gleymir öllum kosningaloforðum eða gengur inn í einhvern fjórflokkinn.  Og við kjósendur sitjum eftir með asnaeyru.

Samt skárra að kjósa þetta lið en að skila auðu og þannig breyta engu.  Rúmt ár til kosninga.  Nægur tími til að velta vöngum.  En miðað við þá tvo frambjóðendur til forseta í sumar, þá er valið býsna auðvelt.

Frekar Ólaf en Ástþór.  Bara hálf bilaðir einstaklingar virðast voga sér gegn kallinum.  Aðrir frambjóðendur virðast ætla að bíða þar til að hann hættir endanlega eftir svona tvö ár og láta þá slag standa.

Hringsólið hafið á ný

Andskotans hrægammarnir eru byrjaðir aftur að sveima í hringi yfir mögulegum fórnarlömbum.  Jakkalakkar frá bönkum stilla sér á ný fyrir framan vínbúðir og tryggingasalar reyna að plata fólk til að kaupa eða skipta um félag.

Kona hringdi í mig um daginn og vildi fá að senda mér „tilboð“ í tölvupósti.  Ekkert bólaði á því en einhver gaur frá sama félagi hringdi nokkrum dögum seinna með trygginguna klára á borðinu hjá sér.  Vantaði bara smá upplýsingar og málið væri dautt.

Ég kom auðvitað af fjöllum.  Var ekki búinn að samþykkja nokkurn skapaðan hlut.  En gaurinn gafst ekki upp.  Hélt áfram að reyna selja mér snákaolíuna sína.  Viðurkenni að það fauk hressilega í mig og ég gólaði einhver vel valin orð í símann.

Hélt að einungis góðgerðarsamtök mættu hringja í númer með rauða X-inu fyrir framan?