Don Soprano

Slæddist inn í eitt af útibúum lyfjakeðju til að láta rukka mig í rassinn fyrir lífsnauðsynlegt læknadóp.  Er víst nokkuð sama hvert maður fer.  Verðið er svipað.  Sérstaklega ef tekinn er með bensínkostnaður í ódýrari apótekin.

Leið eins og ég hefði gengið inn á sjálfan Tony Soprano.  Þarna stóð í öllu sínu veldi súlukóngur landsins, sjálfur Gullfingur.  Nýorðinn sextugur.  Gott ef að kallinn kinkaði ekki kolli til mín.  Sennilega vanur því að apar eins og ég góni þegar hann bregður sér út í dagsbirtu.

Sjónvarp

Mér mislíkar hve mjög sjónvarpsdagsskráin stjórnar kvöldunum hjá mér.  Hún er ekki einu sinni það spennandi.  Sé bara RÚV og kasta ekki aurum í áskriftir hjá Skjá Einum eða Stöð 2.  Enda eru þær síst skárri með sitt drasl.

Er mikið að pæla í að taka sjónvarpið úr sambandi og verja tímanum í eitthvað betra.  Taka aftur upp lestur.  Virkja heilann í stað þess að vera hlutlaus áhorfandi fyrir framan kassann.  Sjónvarpið er heilaþvottastöð.  Tímaþjófur sem eykur heimsku manns.

Úlfahjörð

Hvað er eiginlega í gangi?  Sex menn á sendibíl reyndu að grípa stúlku við tjörnina í miðbæ Reykjavíkur á föstudagskvöld en urðu frá að hverfa þegar fólk kom að og spurðist fyrir hvað þeim gengi til.  Sögðust þá bara vera að grínast og slepptu stúlkunni.

Hvers konar vibbasamfélag er þetta að verða?  „Hei, hittumst félagarnir og rænum ungri stúlku til að misnota.  Það er nú einu sinni komin helgi.“  Svona menn á að taka af lífi.  Klippt og skorið.  Eru svo skemmdir að viðgerðir hafa ekkert að segja.

Verst þykir mér að svona óþverrar eru byrjaðir að hópast saman og skipuleggja sig.  Þá fyrst er fjandinn laus.  Passið börnin ykkar.  Lítið ekki af þeim augum.