Karlar sem hata konur

Renndi yfir myndaalbúmið „Karlar sem hata konur“ á Facebook.  Þvílík snilld.  Rosalega eru til margir veikir karlar í þessu landi.  Flestir þeirra virðast reyndar vera óþroskaðir guttar með aðra hönd á limnum meðan þeir tjá sig á netinu.

Halda að þeir séu miðja alheimsins og að eina hlutverk konunnar sé að sinna þeirra kynórum.  Gleyma að þeir eiga sjálfir systur, frænku og mömmu.  Og að einhverjir aumingjar hugsa um þær á sama hátt. Varla vilja þeir það?

Hérna er slóðin á albúmið hennar Hildar : https://www.facebook.com/media/set/?set=a.10150612413116248.407343.638641247&type=1

Óþarfa afskiptasemi

Hef aldrei skilið menn sem bölsótast út í samkynhneigða með Biblíuna að vopni.  Hafa þeir virkilega ekkert skárra að gera.  Hvað eru þeir að bögga ástfangið fólk af sama kyni?  Er öfund í gangi?

Lífið er nógu flókið fyrir.  Flækjur þvælast bara fyrir.  Lífið er best einfalt.

Þess vegna skil ég ekki þrautseigju homma- og lesbíuhatara.  Þetta kemur þeim ekkert við.  Get your own simple life and enjoy it!  Látið aðra í friði.

Klámvæðing æskunnar

Heyrði útundan mér að til sölu væru g-strengir og fyllt brjóstarhöld fyrir stelpur niður í allt að átta ára gamlar.  Og það í Hagkaupum.  Væri þar verið að bregðast við eftirspurn mæðra sem sjálfar klæðast slíkum múnderingum dætrum sínum til eftirbreytni.

Rosalega er heimurinn orðinn sjúkur.  Mega börn ekki lengur vera börn.  Þarf að kynja þau upp strax og þau hefja nám í grunnskóla?  Hvað er næst.  Punghlífar fyrir drengina svo þeir sýnast vera vel vaxnir niður?

Skammist ykkar foreldrar!  Ykkur væri nær að innræta krílunum ykkar sjálfstraust og sjálfstæða hugsun heldur en að klæða þau upp eins og klámmyndastjörnur.