Leigubílar

Með hálfónýtan vinstri fót hef ég fengið tímabundið niðurgreidda akstursþjónustu hjá Reykjavíkurborg. Lengst af bílar frá Pant. Litlir sendibílar með fjórum litlum sætum og rými fyrir tvo eða þrjá hjólastóla. Frekar óþægileg ferðalög ykkur að segja.

Eftir að ég lagði hnéhjólinu hef ég hinsvegar aðallega ferðast með leigubílum frá Hreyfli. Kvarta ekki yfir því að vera keyrður á milli staða á Tesla, BYD, Mitsubishi, Toyota og Skoda rafbílum. Á eftir að sakna þessa fararmáta þegar ég neyðist til að haltra aftur í úldna strætisvagna.

Leigubílstjórar eru jafn misjafnir og þeir eru margir. Þó allir fagmenn fram í fingurgóma. Finn fljótlega hvort þeir eru til í spjall eða kjósa að vera hljóðir alla leiðina.

Leitt að Sigurður Ingi hafi reynt að eyðileggja stéttina með lagafrumvarpi sem veitti flóðbylgju af flóttamönnum leyfi til að taka prófið blindandi og hertaka Leifsstöð og miðbæinn um helgar. Skilst að það sé annað frumvarp á leiðinni sem á að bæta stöðuna umtalsvert og skikka bílstjóra að vera á stöðvum með mæli og án okurs.

Hvað þá?

Þegar appelsínuguli trúðurinn í Hvíta húsinu beinir sjónum sínum að okkur og heimtar að fá að eignast Ísland. Hvað gerum við þá?

Veit að flokkarnir á Alþingi munu beygja sig vel og opna á sér rassgatið í von um gróða. Við hin verðum hinsvegar að berjast á móti. Leita ásjár hjá hinum Norðurlöndunum og Evrópu.

Frekjuhundar skilja ekkert nema duglegt pungspark og þvert nei.

Breiðholtsgengið

Fáranlegt að einhverjir fimm tólf ára drengir haldi heilum skóla í heljargreipum. Heilu hverfi þegar út í það er farið. Bara af því þorri þeirra er af erlendu bergi brotinn og það má ekki snerta þá.

Hefði ég hagað mér svona tólf ára gamall 1985, hefði ég endað hjá Reyni skólastjóra sem hefði stýrt mér í rétta átt með nokkrum þjósti. Hefði aldrei komist upp með slíka hegðun til lengdar.

En núna mega kennarar ekki anda á börnin af ótta við að fá lögfræðing í hausinn.