Drómi

Óánægður lántakandi hjólaði í starfsmann Dróma sem sér um að innheimta lán Frjálsa Fjárfestingabankans og SPRON.  Er nema von.  Þetta eru hrægammar frá Helvíti sem verðleggja eignir allt of hátt til þess eins að kreista sem mest fé út úr fólki.

Svona óþokka á að hengja upp í hæsta tré og svo tjarga með tjöru og fiðri.  Hef enga samúð með svona fávitum.  Þeir kalla yfir sig ofbeldi og reiði fólks með hátterni sínu.  Árásarmaðurinn á Fálkaorðu skilið.

Skilst reyndar af fréttum að hann verði ekki kærður.  Enda enginn slasaður eftir átökin.  Bara réttlát reiði að fá útrás.  Enginn vill vera rændur og kúgaður af bankanum sínum.

Bankarnir sigra alltaf

Enn einn dómurinn fellur í Hæstarétti og um leið eru fulltrúar bankanna og stjórnmálamenn þeim hliðhollir farnir að túlka hann þeim í vil.  Aðeins þeir sem hafa staðið í skilum og eiga kvittanir því til stuðnings fá vaxtaleiðréttingu samkvæmt skilningi Skattgríms Joð.

Mér finnst rosalega skrítið að Hæstaréttardómar skuli vera túlkaðir jafn frjálslega og textar Biblíunnar.  Bankarnir virðast geta lesið hvað sem er út úr þeim og svo ullað á lántakendur.  Og pólítíkusarnir kvitta upp á.

Auðvitað

Æ, hvað heitir aftur hún / hann?  Stundum sé ég eftir að hafa ekki krotað nöfn skóla- og vinnufélaga niður í bók og geymt.  Er svo gleyminn á nöfn þó ég þekki fólk vanalega í sjón.  Getur orðið virkilega vandræðalegt þegar ég rekst á eitthvað af þessu liði.

Skilst að þessi gleymska hafi eitthvað að gera með svæfingar þær sem að ég gekkst undir í æsku.  Las að sérhver svæfing svipti viðkomandi hluta af getunni til að muna einföldustu hluti eins og nöfn á fólki.  Sú vitneskja hverfi fyrst.

Rakst einmitt á fyrrverandi vinnufélaga nýlega og gat engan veginn munað hvað hann heitir.  Reyndi að sjá það á nafnspjaldinu hans en tókst ekki.  Sá það loks á kvittuninni eftir viðskipti okkar.  Og hrópaði „auðvitað heitir hann það!“.