Sóðastrákar

Mér finnst alltaf jafn fáranlegt þegar sóðastrákar fara að væla yfir mótstöðu kvenna gegn nektardansstöðum.  Eins og það séu einhver sjálfsögð réttindi karla að fá að góna upp í klofið á manseldum konum eða kaupa sig upp á þær.

Játa fúslega að hafa farið inn á slíkar búllur í félagi við aðra en aldrei einn.  Leið alltaf eins og nauðgara.  Hef aldrei vogað mér þangað edrú.  Enda gera þessir staðir út á graða og drukkna karlmenn.

Síðast þegar ég fór var það hjá Geira á Goldfinger fyrir nokkrum árum.  Gullfalleg þeldökk stúlka frá Bretlandi bauð mér allan pakkann á 40 þúsund.  Ég afþakkaði og fékk strax illt auga hjá dyravörðunum.  Samt vissi Geiri ekki af neinu vændi.  Skrítið!

Mín eina afsökun er að ég var einhleypur og ölvaður öll skiptin sem ég slæddist með á þessar sóðabúllur.  Margir aðrir voru í sambandi.  Sumir fengu sér einkadans.  Samt ekki allir.  Sjálfur fékk ég einn slíkan í afmælisgjöf.  Hinn keypti ég sjálfur.  Hún var bara svo falleg.

Grímubúningadagurinn

Öskudagur runninn upp.  Ætti kannski að mála mig ljósgrænan og þykjast vera Shrek.  Ganga á milli banka og verslana og syngja út nammi.  Gæti gengið upp.  Aldrei að vita.  Þyrfti samt að horfa á myndirnar til að búa mig undir hlutverkið.

Á sennilega eftir að horfa á allar frægar teiknimyndir síðan The Lion King kom út.  Einhver meinloka í mér sem gengur illa að laga.  Nenni varla að hanga yfir venjulegri kvikmynd og hvað þá teiknimynd.  Get varla hangið lengur en þrjú kortér í einu yfir kassanum.

Reyksugur eru erfiðar í umgengni

Hvar stendur að reykingarfólk megi reykja inni í biðskýlum?  Hvergi!  Samt hrúgast þetta pakk inn í skýlið mitt fyrir utan MK og svælir mig út meðan ég bíð eftir vagninum.  Frekjur og fúlmenni!

Taldi mig óhultan hinum megin við götuna.  En nei.  Tvær skessur skunduðu yfir og drógu upp líknagla og eld.  Friðurinn var úti.  Neyddist til að færa mig fjarri þeim þvert gegn eigin vilja.  Samt aðallega til að þurfa ekki að hlýða á kvabbið í þeim.