Kolb in the wild varð fimmtugur. Hélt upp á það á einhverju setri í útlöndum ásamt nýjustu barnungu kærustunni og bauð leiðinlegasta og mest óspennandi fólki landsins til veislu. Fólki sem er svo upptekið af sjálfu sér að það hálfa væri nóg. Allt mætt til að fá mynd birta af sér á samfélagsmiðlum og samkvæmissíðum fjölmiðlanna.
Author: Þrasvarður
Óðir hundar
Óþolandi hvernig dómskerfið tiplar á tánum í kringum kynferðisbrotamenn sem brjóta á konum í veikri stöðu. Konum sem að lenda undir stjórn aumingja sem misnotar þær og leiðir yfir þær enn meiri misnotkun frá félögum sínum sem svo sleppa með skrekkinn án dóms.
Átta ára dómur er ekkert! Dragið hann og félaga hans á bak við hús og lumbrið duglega á þeim fyrir glæpi sína. Svona menn eiga ekkert erindi í siðað samfélag og ættu að vera réttdræpir eins og óðir hundar sem bíta og glefsa í lítil börn.
TikTok
Kína er að njósna um okkur!
Sat á stellinu um daginn og var að herma eftir Beavis og Butthead. Kveikti á TikTok skömmu seinna og það var fullt af myndböndum af þeim félögum.