The American President

Þar sem Halla og Björn eiginmaður hennar eru bæði þaulmenntuð í henni Ameríku og bjuggu þar í meira en áratug, má áætla að nú séu Bessastaðir orðnir Hvíta húsið á Íslandi. Bæði börnin þeirra líka í háskólanámi vestanhafs.

Taktíska fólkið taldi síg vera að kjósa sig frá valdinu en kaus sig í staðinn að frjálslyndari armi valdsins. Halla var framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs um stund. Embætti sem ENGINN utan Sjálfstæðisflokksins fær að gegna.

Flottasta plott íslenskrar stjórnmálasögu náði fram að ganga og Bjarni Ben. skellihlær heima í Garðabænum eftir að hafa baktryggt sig með bæði Kötu Jak. og Höllu Tómasar. Sendiráð bíður Kötu. Engin lög verða send til þjóðarinnar næstu fjögur árin.

Forneskja

Allir fjölmiðlar gasprandi hve spennandi forsetakosningarnar séu næstkomandi laugardag og mjótt á milli efstu frambjóðenda.

Mig grunar að kjörsókn verði sögulega lág rétt eins og utankjörfundarsóknin sýnir. Fólk gerir bara ráð fyrir að Katrín verði forseti og nenna þessu ekki. Fara bara frekar út úr bænum eða sitja heima yfir grillinu sötrandi léttvín og bjór.

Forsetaembættið er æðsta sendiherrastaða landsins og Guðni og Elíza sinntu því af kostgæfni. Hefði kosið að þau hefðu nennt því fjögur ár í viðbót, en allt í lagi. Lífið heldur áfram. Á auðvitað bara að breyta stjórnarskránni og leggja þessa forneskju niður rétt eins og ÁTVR. Nota peninginn í velferð og heilbrigði.