Afneitun

Enn á ný sprettur upp þreyttur gítarglamrari sem kennir #metoo um alla sína ógæfu. Að hann hafi aldrei níðst á neinni stúlku nema kannski þetta eina skipti á menntaskólaballi. Og alls ekki setið um gagnfræðaskólastúlkur eftir tónleika og sagt þeim að liggja grafkyrrar meðan hann kláraði.

Af hverju var hann þá settur í tónleikabann í gaggó og menntó? Skrítið!

Annars er hann varla sá eini. Margir af þessum vesalingum með hljóðnema, hljómsveit eða gítar telja sig eiga tilkall til alls kvenkyns dansandi fyrir framan sviðið. Jafnvel þeirra barnungu.

Barist við vindmyllur tímans

Að þau skuli nenna þessu!

Netverslun milli landa er lögleg. Netverslun innanlands er lögleg. Gildir einu hvar lagerinn er staðsettur.

Einkaleyfi ríkisins hefur verið andstætt lögum frá aflagningu dönsku einokunarverslunarinnar. Einokun í þágu almannahagsmuna er líka ólögleg. Einokun er ólögleg.

Dröslist inn í samtímann!

Sýndarmennska

Kosningar um áframhald viðræðna við Evrópusambandið eru tóm sýndarmennska. Auðvitað kýs meirihluti þjóðarinnar gegn því því fólk er fífl sem leitar þar sem klárinn er kvaldastur.

Borgarlína er tóm sýndarmennska barin saman til að þétta byggð og hækka íbúðarverð fyrir verktaka.

Sjálfstæðisflokkurinn er kominn niður í léttvínsfylgi en hefur á móti komið fulltrúum sínum fyrir í flest efstu sæti helstu framboða til borgarstjórnar. Hvaða Sjálfstæðisflokk ætlar þú að kjósa?