Strætó er áreiti

Ég verð sífellt fráhverfari því að ferðast með stætó. Sérstaklega yfir sumartímann þegar færðin er góð og veðrið stundum líka. Þá er þess virði að nota tvo jafnfljóta í staðinn þótt það taki lengri tíma.

Ef ég sting ekki heyrnartólum í hlustirnar í strætó neyðist ég til að hlýða á fólk öskra í símana sína á þremur til fjórum óskyldum tungum, gelgjur hlusta á síðasta smellinn á fullu blasti og einhvern furðufugl aftast í vagninum að æfa sig á gítarinn sinn.

Ekki beint kjöraðstæður fyrir innhverfan einstakling með félagsfælni á háu stigi sem þarf að hafa stjórn á umhverfi sínu öllum stundum. Kannski að ég prófi hlaupahjólin.

Feðraveldið grípur til varna

Forstjóri Festar látinn taka pokann sinn fyrir að ljá kvörtunum Vitaliu eyra. Slíkt er bannað í veröld kallakalla. Ljótt að snúast gegn typpalingum sem leita á og misnota konur. Skamm!

Vitalia er horfin af samfélagsmiðlum. Hefur henni verið gert tilboð sem hún getur ekki hafnað?

Ljót ásjóna feðraveldisins birtist á ný og heimtar völd sín tilbaka. Gott ef Ingó í barnaleit sjái ekki um brekkusönginn í ár og verður fagnað sem glötuðum syni Vestmannaeyja. Logi Bergmann tekur við sem útvarpsstjóri. Pottverjarnir þrír snúa aftur til feitari embætta en fyrr.

Öfgar verða handteknar og dæmdar. Og eltar út fyrir gröf og dauða eftir það. Hér má engu breyta. Veiklyndir karlar verða að fá að svala fýsnum sínum í friði.

Rosalegar hetjur

Var að horfa á frétt á RÚV að hreindýr fyrir austan væru að missa friðlandið sitt svo miðaldra hetjur með rifla geti líka plaffað á þau þar.

Hvað er svona heillandi við að liggja á mosagróinni heiði með kraftmikinn riffil með sjónauka og hljóðdeyfi og skjóta á varnarlausa hreindýrahjörð fyrir neðan þig?

Svo kallar leiðtogi leiðsögumanna þetta ferðamennsku. Þetta er óþarfi og einungis gert til að efla sjálfstraust getulausra karla með stórar byssur.

Af hverju skjóta þessar mannleysur ekki bara hvorn annan? Miklu meira fjör þannig.