Hver hagar sér svona!

Málsókn gegn skattinum. Málsókn gegn kynni Grammy. Málsókn gegn BBC. Yfirtaka á virtri menningarstofnun nefndri í höfuðið á John F. Kennedy. Sem hann ætlar svo að loka því enginn mætti á frumsýningu á mynd Melania konu hans. Auk þess sem að helmingurinn af listafólkinu sem ætlaði að koma fram á næstunni hefur hætt við. ÞÚ KLÍNIR EKKI EIGIN NAFNI Á STOFNUN ANNARS FORSETA! Síst af öllu þegar þú ert enn á lífi.

Alveg er ég viss um að hann ætlar að láta rífa John F. Kennedy Center for the Performing Arts svo hann geti byggt Donald J. Trump Center for the Performing Arts í rústunum.

Hvenær er nóg orðið nóg! Og af hverju í ósköpunum kusuð þið þennan trúð aftur yfir ykkur! Þið meðalgreinda þjóð!

Davos

Reyndi að hlusta á gerpið en gafst fljótt upp. Maðurinn lýgur og lýgur. Af hverju er Evrópa að krjúpa fyrir þessum andskota!

Gavin Newsom ríkisstjóri Kaliforníu mætti á svæðið en fékk ekki að halda ræðu samkvæmt skipun frá Hvíta húsinu. Kom einmitt með hnéhlífar fyrir evrópska leiðtoga fyrst þeir ætluðu að skella sér á hné fyrir appelsínugula gerpið.

Carney forsætisráðherra Kanada stal senunni með þrumuræðu. Kennedybragur þar á ferð. Væri ekki betra ef Kanada tæki yfir Norður-Ameríku!