Lítill karl

Þegar karlakarlar hafa stuðað mig, hef ég vanalega reynt að draga úr upplifun minni og gefið þeim smá séns. Talið sjálfum mér trú um að ég þurfi kannski að kynnast viðkomandi betur og taka rök hans betur til greina. – En ekki lengur.

Eftir #metoo og #metoo2, þá gef ég mér bara að viðkomandi karlakarl líti á konur sem ambáttir og kynlífsleikföng. Að þær megi ekkert en þeir allt. Og hef oftar en ekki haft rétt fyrir mér. Eins og með útvarpsmann nokkurn sem ég hef ávallt talið stæka karlrembu og kvenhatara.

Kom mér ekkert á óvart að hans fyrrverandi myndi loks stíga fram og segja frá hegðun hans. Hótunum hans í mörg ár í tölvupóstum eftir sambandsslitin og öðrum leiðindum. Rosalega lítill kall.

Freki hjólreiðamaðurinn…

reyndi með einbeittum brotavilja að renna yfir mig í Nóatúninu þar sem ég slæddist niður gangstíginn við Nettó á mannbroddunum mínum. Hann stormaði beint upp stíginn klæddur eins og sérsveitarmaður á fjallahjólahlunk og ætlaðist til að ég viki. Sem ég sem gangandi vegfarandi á ekki að þurfa að gera með minn forgang og gerði auðvitað ekki. Lá við slysi. Var að hugsa um að draga hann af hjólinu og margberja í andlitið.

Flóttafólk

Evrópskt, hvítt flóttafólk þarf á aðstoð að halda vegna geðveiki eins manns. Ekkert mál. Ráðum bara sama gæjann og rak sóttvarnarhótelin (fangelsin) til að sjá um dæmið.

Og drífum okkur endilega í því í leiðinni að reka litaða og óæskilega flóttafólkið úr landi til að búa til meira pláss. Þau trúa hvort sem er ekki einu sinni á frelsara vor, Jesú Krist.

Sóttvarnarhótelin verða tekin aftur í gagnið og flóttafólki meinað að fara út af þeim af ótta við að þau smiti þjóðina af frelsisást. Guð forði okkur frá slíku!