Omikronáramótin

Þórólfur er að koma sér fyrir fyrir framan tölvuskjáinn með síðasta minnisblað ársins. Útgöngubann og bann við að skjóta upp flugeldum á gamlárskvöld. Aðeins einn af hverju heimili má skakklappast í matvöruverslun og apótek. Öðrum verslunum, veitingastöðum og samgöngum verður bannað að starfa.

Gleðilegt nýtt ár!

Áramótaheitið mitt

Áramótaheitið mitt er tvöfalt. Að þiggja ekki fleiri sprautur gegn Covid-19 og að kjósa aldrei aftur.

Ljóst er að sprauturnar þrjár sem ég hef fengið veita enga vörn og að tilgangslaust er að mæta á kjörstað þar sem kosningasvik eru viðurkennt norm á Íslandi.

Þar hafið þið það!

Fólk deyr á hverjum degi

Nú er ég orðinn forvitinn. Hve mörg fleiri ákveða að taka líf sitt í þessum leiðindum en í meðalári? Hve mörg fleiri deyja áður en þau komast í aðgerð? Bara vegna Covid-19?

Hvernig væri að taka þessi líf með í reikninginn í stað þess að einblína á hve margir einstaklingar gætu dáið þríbólusettir vegna Covid ef veirunni væri sleppt lausri á mannfjöldann?

Samfélagið er ryðgað fast. Lögreglan er hætt að eltast við glæpi sem ekki varða brot á sóttvarnarreglum. Nú má víst ekki lengur dansa samkvæmt einhverjum pappakassavarðstjóra.

Með þessu áframhaldi mun þjóðin deyja úr leiðindum.