Krýsuvík

Krýsuvíkursamtökin eru að betla pening til að stækka við sig og bæta sjö rýmum við þau tuttugu og tvö sem fyrir eru. Þetta á að kosta 120 millur og þau vantar 50 til að klára dæmið. Höfða því til hófdrykkjufólks að vera edrú í febrúar og dæla andvirði áfengisins inn á reikninginn þeirra.

Sporin hræða! Saga þessara samtaka er ekki upp á marga fiska. Lágpunkturinn kom árið 2018 þegar dv.is kom upp um allsherjarsukk fjölkskyldu og vina sem ráku dæmið eins og eigin sparibauk. Bónaðir nýir jeppar á hlaðinu og hlaðborð veikra kvenna sem starfsmenn gátu sótt í að vild til að seðja kynferðislega óra sína.

Ætlum við aldrei að læra! Náði umfjöllunin um Bakkakot ekki inn fyrir beinmerginn á hausamótunum okkar?

Hættum þessu einkarekna meðferðarstarfi. Þetta er löngu fullreynt og er bara gróðrastía fyrir sukk, svínarí og misnotkun.

Bakkakot

Hef ekki enn þorað að horfa á þáttinn en las ítarlega skriflega umfjöllun á ruv.is. Þvílíkur viðbjóður og vanvirðing fyrir drengjum í veikri stöðu. Þegar þeir þörfnuðust aðstoðar fengu þeir bara ofbeldi af hendi ummönnunaraðila sinna. Og var nauðgað af vinnumanni af nálægum bæ. Allt á sömu bókina lagt. Að fara illa með unga drengi frá fátækum heimilum í vanda.

Bæ, bæ, barnæska. Megi þessar barnaverndarnefndir fínna frúa af betri heimilum fyrri tíma skammast sín! Þið voruð ekki að gera börnunum neinn greiða með því að fjarlægja þau af heimilum sínum og senda þau á bóndabæi.

„Dittó“ var svar mitt í athugasemdum hjá Grími Atlasyni þegar hann þakkaði fyrir að hafa ekki lent í barnaverndarnefnd í æsku komandi af erfiðu heimili sem barðist í bökkum. Annars værum við báðir eflaust mun skaddaðri en við erum.