Sama hvað við segjum…

um Miðflokkinn. Fólk mun samt kjósa hann til valda í bæjarstjórnum landsins í vor. Og svo til Alþingis í kjölfarið.

Af hverju? Því fólk eru fífl og fávitar upp til hópa. Rétt eins og apaheilarnir handan tjarnarinnar sem kusu appelsínugulan trúð aftur í Hvíta húsið.

Þangað leitar klárinn þar sem hann er kvaldastur.

Sorglegt

Að Trömpisminn sé að gera sig gildandi á Íslandi í gegnum Miðflokkinn. Að íslensk MAGA-hreyfing sé að afla sér fylgis fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor.

Af hverju ætlar fólk að kjósa yfir sig afturhald, kvenhatur, karlrembu, hómófóbíu, útlendingahatur, minni velferð, afturköllun mannréttinda og aðdáun á einhverjum appelsínugulum apa í Hvíta húsinu sem er við dauðans dyr?

Af hverju? – Því fólk er fífl!

Kaupin á eyrinni

Enn á ný er læknamafían komin á kreik með ályktanir gegn undarlegustu hlutum eins og örorkulífeyri og áfengissölu.

Ekki má tengja bætur við vísitölu því þá nennir enginn lengur að vinna fyrir lúsarlaunum. Ekki má slá einkasölu áfengis úr höndum ríkisins þvi þá verða allir að fyllibyttum.

Og allir sjúkdómar landsins eru tengdir áfengisneyslu með einum eða öðrum hætti. Hvergi talað um óhollt fæði, sykur og hreyfingarleysi. Nei, bara helvítis áfenginu um að kenna.

Setja skal á sykurskatt í stað þess að taka skatt af hollustuvörum.

Kaþólikkar bjóða samkynhneigðum sóknarbörnum upp á bælingarmeðferðir í stað þess að bjóða barnaníðingum innan safnaðarins upp á sálfræðimeðferð til að takast á við kenndir sínar.

Byggja skal Borgarlínu til að greiða fyrir umferð og flutning fólks á milli borgarhluta. Jafnvel þó að meirihlutinn kjósi einkabílinn þrátt fyrir hangs í umferð á annatímum. Fólk skal bara losa sig við hinn bílinn og ferðast með strætó ásamt öskrandi útlendingum og unglingum með snjallsímana sína á fullu blasti.

Svona ganga bara kaupin á eyrinni fyrir sig á þessari djöflaeyju.