Eftir langt hlé

Hef ekki nennt að stinga niður penna síðastliðnar vikur. Hvorki haft löngun né vilja frá því mamma kvaddi þessa jarðvist og hélt út á veiðilendurnar miklu.

Taldi mig vera tilbúinn eftir fráfall pabba fyrir sex árum síðan, en nei. Bylmingshögg í magann svo ég missti andann og féll niður á hné hágrátandi eins og ungabarn. Jafnvel þó hafi verið ljóst í hvað stefndi síðastliðin þrjú ár.

Mamma hefur heimsótt mig af og til í draumum síðan þá. Minnt á sig. En alltaf á góðan máta.

Fann frétt í handritum RÚV um fyrsta umsjónarmann fasteigna Austurbæjarskóla sem var að fara á eftirlaun 1958 eftir 28 ára starf. Tilvalið til að spyrja mömmu um í næstu heimsókn sem fyrrverandi nemanda. Svo kom höggið. Hallaði dyrunum að skrifstofunni og sat hljóður um langa stund og barðist við grátinn.

Hvíl í friði gamla! Sjáumst í næsta stríði.

Spark í rassinn utan frá

NEI – hreyfingin heldur því fram að við sjálf getum náð niður verðbólgu og vöxtum. Samt hefur okkur aldrei tekist það. Kannski er spark að utan velkomið til að koma okkur í gang.

Sorglegt að sjá hve mikið Katrín Jakobsdóttir er tilbúin að teygja sig til valdaklíku viðskipta og stjórnmála og tala á útifundi þeirra á Austurvelli sem var fullur af gömlu, spilltu eignafólki úr Sjálfstæðisflokknum.

JÁ við áframhaldi á viðræðum við ESB! Hvernig getur það verið áfram fyrir Ísland að kjósa nei?

Snillingur fallinn frá fyrir aldur fram

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-23-steinn-armann-er-latinn-484599

Man fyrst eftir útvarpsþætti hans og Davíðs Þórs á Aðalstöðinni 1992. Leikarinn og guðfræðineminn úr Hafnarfirði með þátt sem spilaði bara Elvis á milli spjalla og sketsa.

Radíusbræður sem komu uppistandinu á kopp á þessum kletti. Áttum til að stöðva vinnu í bæjarvinnuni í Kópavogi til að hlusta á nýja sketsa streyma úr tækinu í vinnubílnum.

Hitti hann einu sinni á djamminu niður í bæ. Tók fullum mér bara ótrúlega vel. Leyfði mér að hlaða sig lofi og hrósi. Við skildum sáttir.

Hvíl í friði Steinn Ármann.