Lýðveldisdagurinn

http://www.visir.is/staekkudu-svaedid-sem-girt-er-af-a-austurvelli-vegna-motmaelanna-i-fyrra/article/2016160619061

Okkar yndislega ríkisstjórn meikaði ekki mótmælin í fyrra og girti því af Austurvöll og reysti tjald yfir fína fólkið.  Því þessi dagur er aðeins þeim ætlaður.  Ekki allri þjóðinni.

Ég óska öllum góðs Lýðveldisdags.  Losum okkur svo undan þessu glæpagengi í október. Hér þarf að skúra gólf.

Orlando

Djöfull er ég orðinn leiður á þessum andskotans morðingjum!  Kassalaga hálfvitum sem geta ekki sætt sig við aðra heimsmynd en sína eigin.  Myrka og kalda þar sem ekkert rými er fyrir umburðarlyndi eða náungakærleik.  Hvað þá ást.  Bara þeirra svartagallsraus og miðaldir.

 

Miðbæjarrölt

Maður á mínum háa aldri hangir ekki mikið niður í miðbæ um helgar nema þegar nauðsyn krefur.  Varði þar kvöldstund á föstudaginn og náði að drösla mér þaðan með gula vagninum fyrir miðnætti heim í Kópavoginn.  Var ekki orðinn nógu drukkinn til að tíma leigubíl.

Tók óvænt þátt í popquiz með félögum úr vinnunni.  Sean Connery lék Macbeth í fyrstu kvikmyndun á verkinu árið 1961, svo við svöruðum 18. spurningunni að minnsta kosti rétt og áttum von á einum bjór í verðlaun en skildum víst svarblaðið eftir þegar við færðum okkur um set á næsta bar. Skiptir ekki máli.  Keppnin var góð.  Svona eiga happy-hour að vera.

Í gegnum kvöldið milli skemmtilegra samtala og sagna samstarfsfélaga, fylgdist ég með fólkinu sem slæddist inn um dyr baranna tveggja.  Mjög svipuðu fólki og í gamla daga, jafnvel börnum þeirra, bara betur til fara og minna drukkið.