Foreldrasamtök gegn tjáningarfrelsi

Foreldrasamtöl gegn áfengisauglýsingum berjast við vindmyllur. Hafa ekki enn fattað netið þar sem allar auglýsingar blómstra án athugasemda þeirra.

Þar af leiðandi eru þau samtök gegn tjáningarfrelsi og frjálsum vilja einstaklinga. Talið við börnin ykkar í stað þess að banna að auglýsingum sé beint að þeim!

Ritskoðun má aldrei í lög leiða.

Kallakallaflokkurinn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hlaut rússneska kosningu sem formaður Miðflokksins. Snorri Másson var svo kjörinn varaformaður í baráttu við einhverja kerlingu.

Þannig að nú er Miðflokkurinn formlega orðinn að nasistaflokki landsins sem hatar alla jafnt: konur, homma og útlendinga.

Gamlir vinir

Hef verið að dreyma gamla vini upp á síðkastið. Kannski eftir að hafa rekist á bekkjarsystur úr grunnskóla á biðstofu augnlæknis. Hún spurði mig hvort ég væri í einhverju sambandi við gaurana úr grunnskóla því hún heldur enn góðu sambandi við bekkjarsystur okkar.

Sorglegt en satt þá er lítið samband í gangi við gaurana úr grunnskóla. Gufaði einhvern veginn upp eftir að þeir komu sér upp fjölskyldu og ég hélt áfram mína leið sem einstæðingur. Áttum einhvern veginn fátt sameiginlegt eftir það.

En nú virðast draumar mínir að hvetja mig til að hafa aftur samband. Endurvekja kynnin. Hringja, senda póst eða skilaboð. Finnst samt einhvern veginn eins og ég sé að þröngva mér inn í líf þeirra að ósekju.