Slaufum Borgarlínu. Nýtum tugmilljarðana til að bæta götur og niðurgreiðslu rafbíla fyrir lágtekjufólk. Íslendingar eru að upplagi bílaþjóð og það breytist ekkert með einhverri Borgarlínu.
Flokkur: Uncategorized
Davos
Reyndi að hlusta á gerpið en gafst fljótt upp. Maðurinn lýgur og lýgur. Af hverju er Evrópa að krjúpa fyrir þessum andskota!
Gavin Newsom ríkisstjóri Kaliforníu mætti á svæðið en fékk ekki að halda ræðu samkvæmt skipun frá Hvíta húsinu. Kom einmitt með hnéhlífar fyrir evrópska leiðtoga fyrst þeir ætluðu að skella sér á hné fyrir appelsínugula gerpið.
Carney forsætisráðherra Kanada stal senunni með þrumuræðu. Kennedybragur þar á ferð. Væri ekki betra ef Kanada tæki yfir Norður-Ameríku!
Trömparar Íslands
Sumir í Miðflokknum vilja bjóða appelsínugula fyrirbærinu vestan meginn tjarnarinnar í heimsókn. Veita honum verðlaun fyrir að vera versti forseti Bandaríkjanna…í annað sinn.
Af hverju er svona fólk til?