Framsóknarfrekjan

Framsóknarflokkurinn er götóttur lopasokkur frá fornri tíð sem kann ekki að fóta sig í nútímanum. Heimtandi að fréttastofa RÚV skrifi betri fréttir um sig vilji hún fá auknar fjárheimildir. Meiri fávitaskapurinn! Heldur því fram að enginn fjölmiðill skilji flokkinn og áherslur hans. Tíma svo ekki að gefa aftur út Tímann með afturhaldssveitarómantík sinni. Heimta að skattgreiðendur greiði fyrir guðspjallið.

Klóra mér enn í hausnum yfir því ógnarfylgi sem þessi flokksómynd fékk í síðustu kosningum út á andstöðu sína gagnvart Icesave og innantóm loforð um skuldaleiðréttingu sem urðu hvorki fugl né fiskur þegar upp var staðið. Rétt aðeins regnúði á uppblásið skuldabál bankanna. Lenging í hengingarólinni. Fólk er fífl!

Foreldrar með höfuðin upp í rassgötunum á sér

Heykvíslalýðurinn er búinn að verða sér úti um kyndla og sækir hart að þeim 12% foreldra sem láta ekki bólusetja börnin sín af ótta við aukaverkanir. Auðvitað er bölvuð vitleysa að bólusetja ekki börnin en samt algjör óþarfi að fara svo hart gegn foreldrum þeirra að þau eiga sér ekki viðreisnar von.

Þetta er bara nýjasta trendið sem hefur lengi viðgengist í Ameríku. Að hafna bólusetningum. Einhvers konar trúarbrögð sem meirihlutinn skilur engan veginn. Hérna er bara fólk á ferðinni sem hefur það of gott og hefur aldrei kynnst alvöru pestum og áhrifum þeirra. Að þær geti leitt til dauða.

Til hamingju með bjórinn!

Fyrir tuttugu og sex árum fengum við loksins að versla okkur bjór í Ríkinu. Ótrúlegt en satt! Löwenbrau var mest keyptur þann daginn. Hrakspár þingmanna sem voru á móti eru kostulegar. Bæði þá og núna. Jafn fáranlegar og þær raddir nú sem vilja standa í vegi fyrir að áfengi megi selja víðar en bara í ríkisreknum verslunum.

Málið snýst einfaldlega um verslunarfrelsi. Rétt eins og að einokun danskra kaupmanna á utanríkisverslun var afnumin hérlendis 1787 verður að fella hinsta vígi ríkisverslunar í landinu 2015. Tóbak er selt í flestum matvöruverslunum með ofursköttum ríkisins. Því skyldi vera eitthvað flóknara að selja þar áfengi…með sömu ofursköttum?

http://www.dv.is/lifsstill/2015/2/28/bjorbanni-aflett-1-mars-1989/