Put a sock in it!

Stundum skil ég ekkert í sjálfum mér að ferðast með almenningssamgöngum, svona andfélagslegur maðurinn.  Sama hvaða ferð ég vel mér á morgnana til vinnu, þá eru þar ætíð einhverjir fávitar sem kunna ekki að halda kjafti.

Í fyrstu tveimur ferðum dagsins get ég valið milli að hlusta á hóp af öskrandi, þunnum og tóbakslyktandi Pólverjum eða hávært símtal asískrar skvísu við einhvern langt úti í heimi, eða það hlýtur að vera því hún nánast hrópar í farsímann langleiðina til vinnu.

Auðvitað hlýt ég að hata útlendinga.  Engin önnur skýring.  Ekki að við Íslendingar kjósum ró og frið í vagninum til og frá vinnu. Séum rólegheita fólk fyrir utan stöku fávita. Þökk sé snjallsímunum þá hangir landinn á netinu í stað þess að gaspra snemma morguns.  

Í Fréttatímanum í síðustu viku sakar kona farþega strætó um fordóma fyrir að gjóa að henni augunum þegar hún talar við mömmu sína á Skype á arabísku. Hei, halló, við viljum bara smá frið og ró á leið okkar í námurnar. Skiptir engu á hvaða tungu þú framleiðir hávaðann!  Put a sock in it!

Bjargað sér fyrir björgin

Bjarni Benediktsson var á sömu leið og Hanna Birna með kaup á upplýsingum um skattaundanskot þegar hann áttaði sig og sneri vörn í sókn og samþykkti allt sem skattrannsóknarstjóri ætlar að aðhafast í málinu.

Hann sá fram á að enda eins og Hanna Birna héldi hann áfram andstöðu sinni og einbeittum brotavilja í að vernda ættingja og vini fyrir vökulu auga skattayfirvalda. Almenningur líður ekki svona þvætting lengur.

Bjarni veit að ríkisstjórnarsamstarfið hangir á þunnum þræði.  Það má ekki við að hann fari að úthúða skattrannsóknarstjóra í þágu ættingja sinna og vina.

Við erum saklausir!

Stækur hrokinn drýpur af sakborningum sem hlutu dóm Hæstaréttar í Al-Thani málinu. Dirfast að röfla fullir í fréttatímum og óska aðstoðar Mannréttindadómstóls Evrópu eins og einhver fórnarlömb í stað þess að falla á sverð sín og dauðskammast sín.

Alveg á ég eftir að sjá að þessir stórlaxar mæti til afplánunar.  Forða sér sennilega til einhvers ríkis sem er ekki með framsalssamning við Ísland og hlæja að okkur alla leið í bankann þegar þeir vitja þýfisins sem þeir höfðu af okkur.

Munu eflaust finnast fyrir neðan virðingu sína að hlýða kalli æðsta dómstóls landsins.  Og ef/þegar það gerist þá á að svipta þessa dóna ríkisborgarrétti. Hafa ekkert með hann að gera ef þeir virða ekki lög landsins.