Áramótin

Síðasti dagur ársins gerir mig alltaf þunglyndan. Veit ekki nákvæmlega af hverju. Kannski sú staðreynd að þurfa byrja að nýju eftir miðnætti. Langar alltaf helst til að verja deginum í einsemd heima með slökkt á síma og neti. Eitthvað gott í glasi og skemmtilegt undir nálinni.

Náði mestu ólundinni úr mér með því að leggja mig fyrir kvöldmatinn. Annars hefði ég verið ómögulegur eins og í fyrra. Borðaði svo frábært smjörsprautað kalkúnaskip frá Hagkaup með mömmu. Algjör snilld. Ekkert þurrt heldur bara mjúkt og bragðgott. Sósan hennar gömlu skemmdi ekki fyrir.

Renndum í gegnum annálana og skaupið sem mér fannst bara fínt. Skil ekki sífellt væl og ofurvæntingar í fólki. Þetta er bara einfaldur skemmtiþáttur. Honum er ekki ætlað að leysa lífsgátuna. Þrömmuðum loks upp að Kópavogskirkju til að skoða túrista og flugelda í kringum miðnætti.

Er kannski að verða gamalmenni en rosalega fannst mér vera mikið um samfelldar og þungar sprengingar fram eftir kvöldi. Mikið af kraftmiklum kínverjum sem hristu nánasta umhverfi. Rétt svo að það kæmi smá hlé meðan skaupið var en varla svo. Kela kisa var ekki sama og skreið í felur eftir skaup þrátt fyrir stakkt hugrekki fram eftir kvöldi.

Skaupið var fínt!

Nýtt ár gengur í garð og kemur engum á óvart grátkórinn yfir skaupinu. Hvar stendur að það eigi að vera fyndið fyrir alla? Rífið ykkur bara upp af feitum rössunum og reynið að gera betur!

Var svo sem vitað fyrir fram að „kvennaskaup“ myndi aldrei eiga séns fyrir feðraveldinu Íslandi. Yrði alltaf rifið niður og sagt ófyndið. Mér fannst það fínt. Atriðin voru stutt, hnitmiðuð og fyndin fyrir þau okkar sem drullum ekki í sífellu í lófana okkar og köstum skít í skapandi einstaklinga fyrir að reyna að létta okkur lundina.

Best að beygja sig betur

Eitt aumt málefni kemur afdalaflokki frá grárri forneskju aftur að kjötkötlunum. Fyrir það viðvik sem er í raun greitt af okkur sjálfum, heimtar þessi tímaskekkja að fá að ráða; deila og drottna. Nýjasta nýtt var að næla stórkrossi í Sigmund Davíð í skjóli nætur og segja það vera hefð. Gleyma að nefna að þessi hefð var sett í lög fyrir aðeins níu árum.

En við gerum ekki neitt frekar en fyrri daginn. Röflum aðeins út í horni og á netinu eins og ég núna. Gleymum svo öllu saman. Ísland er sennilega eina landið í heiminum þar sem ráðamenn geta gert hvað sem þeim sýnist án þess að veifa hlaðinni byssu framan í lýðinn. Við ypptum bara öxlum, beygjum okkur betur og berum meira vaselín á rassgatið.