Hef haft insúlínpenna hangandi yfir mér síðustu tvo mánuði frá síðasta tékki. Var búinn að sætta mig við að þurfa nota hann þegar ég mætti aftur á deild G3 fyrir sykursjúka á Borgarspítalanum síðastliðinn föstudag.
En þegar vigtin sagði að ég hefði misst heil sjö kíló og langtímasykurinn hafði lækkað umtalsvert, þá var útséð með að ég fengi nokkurn insúlínpenna í jólagjöf. Og ég sem hafði bara hætt að stelast til að borða súkkulaðistykki með hádegismatnum og á kvöldin yfir kassanum.
Aldrei hef ég komist nær því að þurfa að sprauta mig vegna þessa lífsstílssjúkdóms. Og ég ætla mér að komast eins fjarri því í framtíðinni. Eins og læknirinn sagði, þá get ég alveg haft stjórn á sykrinum ef ég vill það. Er ekkert fast í hendi að ég eigi að vera feitur til æviloka.
Ég var einu sinni grannur. Ég mun verða grennri!