Hreppaflutningar og hrun

Hreppaflutningar hinir síðari eru hafnir undir forsæti Sigmundar Davíðs sem skilur ekkert í því að fimmtíu starfsmenn Fiskistofu og fjölskyldur þeirra vilji ekki flytja búferlum til Akureyrar.  Hrokinn svoleiðis lekur af manninum. Hvernig þætti honum ef Forsætisráðuneytið yrði flutt með einu pennastriki út á land?

Er ekki eitt ár nóg með svona vitleysing í forsæti?  Hvenær fær Sjálfstæðisflokkurinn nóg og slítur þessari vitleysu? Held svei mér að Bjarni Ben. yrði mun skárri forsætisráðherra en þetta Framsóknarfífl Pabbason.

Og er það bara ég eða fitnar forsætisráðherra meira með hverri mínútunni sem líður?  Er íslenski kúrinn eitthvað að klikka?  Maðurinn getur varla mælt lengur vegna hálsfitu.

Besserwisserar spá næsta hruni eftir tvö ár.  Ég segi október 2015…eða fyrr.  Með þessa stjórn er hyldýpið handan næsta horns.  Hjá henni varð ekkert hrun 2008.

Hver er sinnar gæfu smiður

Ég er svona og þannig vegna þess að hann eða hún gerðu hitt eða þetta sem hafði slæm áhrif á líf mitt.  Dreg það í efa.  Hver hlýtur að vera sinnar gæfu smiður.  Í gegnum lífið verðum við fyrir áföllum.  Sum þeirra eru öðrum um að kenna. Önnur okkur sjálfum.  Það heftir okkur fyrir lífstíð að benda sífellt fingri í stað þess að líta í eigin barm.

Reiðin er okkar versti óvinur.  Og færir okkur nær myrku hliðinni (the dark side).  Alveg eins og Yoda segir í Stjörnustríði.  Hatur étur okkur upp að innan og heftir okkur frá því að lifa eðlilegu lífi.  Fyrir utan það eru þessar tvær neikvæðu tilfinningar tímasóun.  Lífið er of stutt til að veita þeim nokkuð rými.

Fólk sem veltir sér upp úr reiði og hatri alla daga kemst ekkert áfram í lífinu. Er fast í eigin sjálfskaparvíti. Eyðir tíma sínum í að benda á aðra og kenna um vansæld sína.  Í stað þess að rífa sig upp úr sófanum og gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi.  Lifa.

70. lýðveldisdagurinn

70 ár liðin síðan við ulluðum á Danaveldi undir þýskum járnhæl og gerðumst frjálst og fullvalda lýðveldi.  Spurning hvort okkur hefði ekki vegnað betur í áframhaldandi samfloti með Danmörku?  Að minnsta kosti með færri sveiflum í hagkerfinu.  Kunnum ekkert með peninga að fara.

Eins værum við sennilega aðeins sanngjarnari á ýmsu eins og áfengislöggjöf og tollum á innfluttum vörum.  Enda værum við auðvitað inn í ESB í gegnum Danmörku.  Sjávarútvegur væri þá vonandi ekki eins drottnandi yfir öllu og héldi launum niðri eins og nú.  Kvótagreifar og bændahöfðingjar réðu minna.  Sjálfstæðismafían og Framsóknarfasistar á hliðarlínunni í íslenskum stjórnmálum.

Þvílíkur draumur sem það hefði orðið.  En hvað um það.  Þrátt fyrir að hér hafi tómir apaheilar stjórnað þjóðarskútunni áratugum saman þá höfum við á einhvern undraverðan hátt náð að halda vatni.  Þar er þjóðinni að þakka þrátt fyrir slaka forystu misviturra flokksgæðinga og pabbadrengja helmingaskiptaflokkanna.