Er það til of mikils mælst?

http://www.visir.is/ordsending-til-islenskra-karlmanna/article/2013711309979

Ægileg öskur hafa hljómað á netinu vegna þessarar þörfu greinar sem birtist í tilefni 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi.  Hvernig dirfist konan að spyrða okkur saman við nauðgara og þaðan af verra?  –  Eeehhh, kannski vegna þess að við karlar eigum það skilið.

Hér ríkir þvílík nauðganamenning að það hálfa væri nóg.  Ota skal tota hvar sem honum verður komið fyrir.  Sofandi stelpur geta hvorki svarað játandi né neitandi og eru því eðlileg og réttmæt skotmörk.  Eða það virðist miðað við öll tilvikin sem ráðist er á þær í værum blundi og/eða undir áhrifum.

Stafa öskrin út af því að verið er að hafa þessi tækifæri af karlpeningnum?  Taka frá þeim möguleikann á að losa ef höslið gengur ekki upp í miðbænum.  Hvaða máli skiptir það?  Hún er sofandi og mun aldrei komast að neinu.  Eða hvað?

Ég velti fyrir mér hvort að þeir sem fetta fingur út í grein Hrafnhildar hafi ekki bara eitthvað slæmt á samviskunni.  Orð hennar eru sárasaklaus en stuða þó þá sem finnst frekja af henni að heimta að við hugsum okkar gang og gerum samfélagið öruggara fyrir konur.

Verið ekki svona viðkvæmir!  Hrafnhildur er ekki að ráðast persónulega á ykkur, heldur að reyna fá ykkur til að staldra við og hugsa.  Taka afstöðu gegn kynbundnu ofbeldi.  Er það til of mikils mælst?

„Þetta er ógeðslegt þjóðfélag“

Allt að gerast hjá bófaflokkunum.  Útgerðarmenn hafa fengið sitt.  Annað efnafólk einnig.  Aukið fé í æðstu stjórn og flokka landsins.  Aðstoðarmenn út um allt. Bændur óáreittir fyrir utan samtök þeirra.

Hefnd Vigdísar Hauksdóttur rættist í vikunni því hún „er náttúrulega í þessari hagræðingarnefnd.“  Hálfur milljarður í niðurskurð, 39 manns og 21 í viðbót í tímabundnum verkefnum fá sparkið.  Allt vegna þess að einhver móðgaði Vigdísi Hauksdóttur með því að flytja óritskoðuð orð hennar í útvarpi og sjónvarpi.  Orð hennar eru rándýr!  Djöfull hlýtur daman hafa djammað þessa helgi.

Næst á dagsskrá er að koma 365 miðlum og Skjá Einum undir Landsbankann og svo færa þá fjölmiðla í „réttar“ hendur.  Þá verða þeir flestir komnir undir stjórn bófaflokkanna.  Stefán Jón Hafstein veit hvað hann segir.  Að lama RÚV er fyrsta skrefið.

„Þetta er ógeðslegt þjóðfélag“ segir Styrmir Gunnarsson í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis 2009.  Trúið mér.  Ekkert hefur breyst síðan þá.

Nú mega jólin koma fyrir mér

Þá getur þjóðin loksins haldið Jól.  Skuldaniðurfellingatillögurnar komnar fram og reynast auðvitað vera fugl í skógi.  Fjármögnun annars vegar séreignarlífeyrir landsmanna sem er löngu uppurinn og svo bankaskattur sem óvíst er að standist lög.

Engir 200 milljarðar beint frá hrægammasjóðunum og ávísun STRAX í pósti. Reyndar er „strax“ teygjanlegt hugtak samkvæmt Vigdísi Hauksdóttur.  Jafnvel heilt kjörtímabil eins og tillögurnar segja til um.  Alveg eins og mig grunaði.

Nú get ég loksins fullyrt að fjórðungur kjósenda séu trúgjarnir og barnalegir bjánar. Hvað voruð þið að hugsa með að gera þennan trúð að forsætisráðherra! Þá var nú hin norræna velferðarstjórn skárri.  Hún lofaði þó ekki svona illilega upp í ermina á sér.  Notaði reyndar orðið „skjaldborg“ eftir kosningar.  Eitthvað sem hún gat ekki staðið við frekar en núverandi stjórn.

Rétt er að leyfa hátíðunum að líða og efna svo til annarrar búsáhaldabyltingar á nýju ári.  Eða einfaldlega ljúka þeirri sem hófst fyrir fimm árum síðan. Augljóslega misráðið að rétta hrunflokkunum aftur völdin.  Hafa ekkert lært.  Kunna ekki að skammast sín.  Fjögurra ára hvíld var greinilega ekki næg.

Því miður óttast ég að samlandar mínir muni bara malda í móinn og smyrja afturendana meira fyrir komandi tíð.  Beygja sig betur í veikri von um að sársaukinn minnki.