Fjölmenningin er frábær

Nú er verið að eltast við flóttamann í felum sem segist eiga von á barni með flóttakonu og því megi ekki reka hann úr landi.  Upphaflega ætlaði gaurinn að hitta þáverandi unnustu sína í Kanada en millilenti hér.  Nú er komið að því að sparka honum úr landi og þá taka einhverjir hippar sig til og fela hann fyrir yfirvöldum.

Þrátt fyrir að Innanríkisráðuneytið sé ranglega búið að leka út að maðurinn sé grunaður um tvöfalt ef ekki þrefalt mansal þegar talin er með konan sem kveðst ganga með barn hans undir belti.  Svo á hann fyrir íslenska unnustu.

Svona einstaklinga vill hippalýðurinn fá inn í landið.  „Misskilda“ glæpamenn frá Afríku sem halda áfram á sinni glæpabraut hérlendis.  Fjölmenningin er svo frábær með svona kauða innanborðs.  Æðislegt, frábært, flott!

Jesú og Múhameð

Sorglegir þessir teboðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sem heimta að Jesú sé í hverri skólastofu borgarinnar.  Síðast þegar ég vissi var trúfrelsi í landinu. Skýtur reyndar skökku við að Þjóðkirkjan sé ríkiskirkja samkvæmt stjórnarskránni.  Passar ekki alveg við trúfrelsið og skoðanafrelsið.

Allt trúboð á að vera bannað í grunn- og framhaldsskólum.  Fáranlegt að leyfa slíkt innan menntastofnana.  Krakkarnir eiga að vera frjáls frá slíkum áróðri. Stjórnmálaflokkar eiga ekki heldur að fá að dreifa eitri sínu yfir nemendur.

Megum heldur ekki vera of auðmjúk gagnvart öðrum trúarbrögðum en kristni. Veita afslátt af gildum okkar til að þóknast þeim.  Eins og þegar Hagaskóli tók svínakjöt af matseðlinum til að styggja ekki þau örfáu múslimabörn sem sóttu skólann. Minnihlutinn á ekki að kúga meirihlutann.

Gamalt vín og innantóm loforð

Sjálfsálit stjórnarflokkanna í borginni er fáranlegt.  Telja sig þess umkomna að bjóða fram úrelta gaura á síðasta söludegi og jafnvel vekja upp spillingarpésa sem sat beggja megin borðsins í borgarstjórnartíð Hönnu Birnu.  Trúa því virkilega að trúgirni kjósenda vari fram á næsta vor.

Nei, þolinmæðina þrýtur í næstu viku þegar niðurfellingatillögur stjórnarinnar koma fram og reynast vera hvorki fugl né fiskur.  Eitthvert samsull skattaívilnana og lífeyristengdra afslátta sem koma fáum sem engum til góða nema kannski þeim tekjuhæstu.  Og á endanum lendir kostnaðurinn á skattgreiðendum en ekki kröfuhöfum bankanna.

En vonandi hef ég rangt fyrir mér.  Vonandi koma tillögurnar þeim til góða sem hafa staðið vaktina og greitt samviskusamlega af sínum eignum í gegnum hrunárin í stað þess að láta allt fara til fjandans.  Fólkið sem Sigmundur Davíð kallar millistéttina og hefur enn enga leiðréttingu fengið.

Forsagan vekur þó hjá mér ugg.  Skærur forsætisráðherra við Seðlabankann í síðustu viku og stöðugt tal hans um að stjórnarandstaðan ætli sér að vera á móti tillögum hans segja mér að Sigmundur sé að reyna að byrgja brunninn fyrir fram. Búa til sökudólga til að benda á þegar fólkinu finnst ekki nóg hafa verið gert.