Við eigum betra skilið

Nóvember nálgast og í lok þess mánaðar á nefnd um leiðréttingu á lánum heimilanna að skila sínum tillögum til forsætisráðherra sem er týndur á einhverri fjarlægri sólarströnd.

Á meðan mælir fjármálaráðherra það sem okkur flest grunar:  Það eru engar leiðir greiðar til að leiðrétta húsnæðislánin.  Öll loforð Framsóknarflokksins um slíkt voru gefin upp á von um atkvæði. Nú þegar þau eru komin í hús má fresta leiðréttingunum út kjörtímabilið og lofa þeim svo aftur fyrir næstu kosningar.

Vonandi grípur þjóðin til búsáhalda í upphafi nýs árs og baular þessa ríkisstjórn sérhagsmuna útgerðar, landbúnaðar og fjármagnseigenda út í hafsauga.  Við megum ekki við þremur og hálfu ári til viðbótar af svona rugli.

Að fjórðungur skuli hafa kosið Framsókn er rannsóknarefni fyrir virta háskóla út í heimi.

Stríðið er tapað!

Mikið leiðast mér þessar fréttir af íslenskum eiturlyfjasmyglurum sem eru böstaðir hér og þar um heiminn.  Vorkunnartóninn í blaðamönnunum sem rita fréttina. Bara af því að smyglarinn kemur frá Íslandi.

Skil reyndar ekki af hverju er verið að loka eiturlyfjasmyglara inni.  Bara kostnaður fyrir samfélagið.  Er ekki nóg að merkja þá í vegabréfskerfinu eða kyrrsetja þá um tíma?  Hvaða árátta er þetta að loka fólk sífellt inni fyrir smá skattalagabrot eins og smygl?

Stríðið gegn eiturlyfjum er fyrir löngu tapað.  Fáranlegt að eyða fleiri mannslífum og fé í þá botnlausu hít.  Lærum af bannárunum í Bandaríkjunum þegar mafían makaði krókinn á áfengisbanninu.

Lögleiðum draslið og leyfum fólki að drepa sig án afskipta yfirvalda.  Erum allt of mörg hvort sem er á hnettinum.  Fínt að grisja eiturfíklana frá.

Misnotkun / nauðgun

Af hverju er nauðgun á barni kölluð „misnotkun“ en ekki nauðgun?  Vigdís Grímsdóttir hefur nokkuð til síns máls í Fréttablaðinu.  Merkilegt hvernig glæpir gegn börnum eru smækkaðir niður.  Rétt eins og þeir skipti minna máli.  Bara vegna þess að fórnarlömbin eru ekki fullvaxnir einstaklingar.

Ætti þessu ekki að vera öfugt farið?  Að dæmt yrði harðar þegar glæpir gegn börnum ættu í hlut?