Læknavísindakirkjan

Besta hugmynd sem ég hef heyrt lengi.  Loksins komin kirkja sem ég get stutt með góðri samvisku.  Sóknargjöld mín upp á 8.736 kr. á ári geta þá runnið til tækjakaupa fyrir fjársveltann Landspítalann.

Hef verið utan trúarfélaga síðan þjóðinni varð ljóst hvers konar dóni Ólafur heitinn biskup var gagnvart konum.  Fram til 2009 runnu gjöldin mín til Háskóla Íslands. Svo er ekki lengur þó illa upplýst fréttabarn Stöðvar 2 telji svo enn vera.  Ríkið hirðir gjaldið til eigin sukks.

Yrði mjög þakklátur að geta stýrt gjöldunum mínum til betri verka enn að halda úti þriggja milljarða utanríkisþjónustu í fimmtán sendiráðum (bráðum sautján). Sendiráð eru álíka nútímaleg hugmynd og hestvagnar.  Notum tæknina til samskipta milli landa.

Hvet alla trúleysingja og efasemdarfólk til að styðja stofnun hins nýja „trúfélags“ á http://www.petitions24.com/taekjakaup og skrá sig svo í það á þar til gerðum eyðublöðum frá Innanríkisráðuneytinu þegar þar að kemur.

Hvet einnig fólk í skráðum trúfélögum til að velta fyrir sér hve mikið af tíundinni þeirra fer til líknunar.  Getur ekki verið að hún fari mestanpart í rekstur og uppihald á sjálfskipuðum talsmönnum Guðs.  Misgáfuðum forstöðumönnum safnaða?

Væri tíundinni ekki betur varið í tækjakaup fyrir fjársvelt heilbrigðiskerfi sem þjónar okkur öllum óháð trúarskoðunum?  Eina í stöðunni með ríkisstjórn hvers eina framlag til heilbrigðismála er að leggja gistináttaskatt á sjúklinga sem neyðast til að leggjast inn á spítala.

Síðasti vagninn í Kópavoginn

Strætó er ágætis samgöngumáti ef væri ekki fyrir hina farþegana.  Ótrúlegt lið sem slæðist inn í vagnana.  Um daginn var þar dauðadrukkinn eldri borgari sem var búinn að pissa á sig og slefaði á eftir öllum konum sem komu inn í vagninn.

Vikuna þar á undan komst ég að því að óráð sé að sitja aftast, því þangað leita símadrengirnir sem geta ekki ferðast á milli A og B án þess að röfla í farsímana sína.  Orð þeirra eru svo mikilvæg að fimmtán mínútu túr með strætó má ekki kljúfa í sundur samhengislaust röflið í þeim.

Í gærmorgun neyddumst við að hlýða á hálfvita sem hló hátt og snjallt hrossahlátri hluta leiðarinnar. Rosalega var gaman þegar hann loks drullaðist út við Kringluna ásamt félaga sínum.  Var kominn að því að handrota kvikindið.

Ég er frekar skrítinn … og þó.  Fyrir mér eru almenningsvagnar eins og bókasöfn. Þar á ró að ríkja.  Fólk á ekki að hanga í farsímum eða öskra eins og andskotar þegar þau hlæja. Hvernig væri að sýna smá virðingu gagnvart hinum farþegunum sem vilja njóta kyrrðar á leið heim til sín að vinnudegi loknum.

Samkynhneigð tveggja flokka

Eftirtektarvert að opinberlega eru engir samkynhneigðir í Sjálfstæðisflokknum eða Framsókn.  Þar eru allir gagnkynhneigðir … opinberlega.  Þrátt fyrir að tölfræði og grunsemdir fólks segi annað.

Þar er aldrei rætt um háskólaprófessor og hugmyndafræðing ofurfrjálshyggjunnar fyrir hrun sem iðulega sést með hlýðinn karlkyns nemanda í eftirdragi á Háskólalóðinni á leið í íbúð sína við Hringbraut.  Gott ef hann og borgarfulltrúi nokkur og fyrrverandi aðstoðarmaður eru ekki fyrirmyndir persónna í vinsælu leikriti sem núna gengur á fjölunum.

Í stjórnarflokkunum gildir sama og í enskum yfirstéttaskólum drengja.  Þykir ekkert tiltökumál þó þeir hommist saman.  Má bara ekki hafa orð á því.  Rétt eins og í Spörtu forðum þar sem ungir drengir í herþjálfum neyddust til að sofa hjá lærifeðrum sínum.