Ég var víst aldrei með stöðu grunaðs manns þrátt fyrir að lögregludrengurinn hafi tilkynnt mér það er við kvöddumst í Nettó Mjódd eftir að ég var sakaður um að kasta bekk í 10 ára stúlku. Bekk sem var nota bene skrúfaður niður svo blessuðu barninu hlýtur að hafa verkið kastað á bekkinn af vanstilltum manni sem líktist mér.
Fékk skriflegt svar frá lögreglunni að ekkert mál um mig væri skráð í LÖKE kerfið. Lögreglubarnið var bara með stæla og valdníðslu gegn mér. Hnykkla vöðvana.
Meika ekki enn að sjá lögreglubíl á ferli. Hvað þá lögregluþjóna á röltinu.
Annars er Mjóddin merkilegur þverskurður mannlífs. Kem þar stundum við á leið minni upp í Boðaþing til mömmu og rek þá nefið inn í Nettó. Verst hvað það eru mörg drukkin erlend skítmenni þarna á ferli. Er aldrei alveg öruggur með mig.