Mannleysur

Mér skilst að fullt af einstaklingum sem tjá sig í athugasemdakerfum dv.is sigli undir fölsku flaggi.  Komi þar fram undir dulnefni.  Séu þess konar gungur og ræflar.

Ég skil ekki fólk sem þorir ekki að tjá sig undir eigin nafni.  Hvers konar aumingjar eru þetta eiginlega?  Þola þau ekki mótrök og gagnrýni, eða óttast þau að vera lögð í einelti?  Fyrir mér eru þetta bara mannleysur sem gera áras í skjóli nætur. Ömurlegt!

Lyklið Reinsann!

Ótrúlega margir bíleigendur leggja í tvö stæði til þess að forðast hurðir annarra bíla. En kalla um leið á sig andúð vegna frekju sinnar sem brýst út í að kerrurnar þeirra eru lyklaðar eða beyglaðar fyrir vikið.  Var þá ekki betur heima setið?

Gaurinn sem lagði í tvö fötluð stæði og yfir göngustíg er náttúrulega fatlaður á geði greyið.  Egóisti frá Helvíti sem trúir því virkilega að hnötturinn snúist í kringum hann og enga aðra.  Hvet alla til að lykla bílinn hans.  Hann á ekkert skárra skilið þetta gerpi.

Sóðastrákur

Allt brjálað vegna gamals stjórnmálaskörungs og barnaperra.  Skiljanlega því fæstir vilja fá hann til stundakennslu við Háskóla íslands.  Í fyrstu skildi ég ekki málið.  En setti það svo í samhengi og er að fatta núna.  Vildi alls ekki að svona væri komið fram við systur, dótur eða frænku mína.

Sóðakallar eiga ekkert erindi sem gestafyrirlesarar við Háskóla Íslands.  Hann getur bara haldið áfram að sitja á ríkulegum eftirlaunum heima í Mosfellsbæ undir pilsfaldi konu sinnar sem engu slæmu trúir upp á hann.