Við getum líka

Þrælaði mér á Hamraborgarhátíðina en nennti ekki á Of Monsters And Men á Vífilstaðartúni.  Hlustaði á þau á RÁS 2 í staðinn.  Upphitunarböndin voru ekkert að kveikja í mér.  Síst af öllu Moses Hightower.  Leiðinda lopapeysuband úr 101 Rvk.

Helvítis geitungarnir eru orðnir snargeðveikir í skapinu eftir að fór að kólna og hausta.  Einn af þeim elti mig óður hálfa leiðina heim frá MK.  Ætla verða mér úti um handhægan gasbrennara til að flambera þessi kvikindi.  Eða bara staut úr apótekinu til að bera á mig svo þeir láti mig í friði.

Framtak Garðabæjar að tónleikunum í gærkvöldi er til fyrirmyndar.  25.000 kjaftar mættu.  Væri óskandi að Kópavogur gerði slíkt hið sama.  Er meira að segja með svæði í huga:  Landfyllinguna fyrir neðan ORA og við hlið siglingaklúbbsins.  Kjörið svæði fyrir tónleika eina kvöldstund.  Og með sjávargoluna til að kæla liðið.  Næg bílastæði á hafnarsvæðinu, í Hamraborg og víðar.

State of the Union

Afsakanir eins og „við vorum kosin af meirihluta kjósenda í vor“ duga ekki lengur. Hundrað daga hveitibrauðsdagar stjórnarinnar eru liðnir.  Nú verður að taka á henni án silkihanska.

Enn bíða kjósendur hrunflokkanna eftir leiðréttingu húsnæðislána.  Eftir ávísuninni sem þau töldu sig fá póstsenda í vikunni eftir kjördag.  Haustið mun sannfæra restina af þeim sem hafa ekki nú þegar misst alla trú á efndum stjórnarinnar.

Að vera á móti Icesave tryggði Framsókn metfylgi.  Að EFTA dómstóllinn skuli hafa sýknað okkur gerði gæfumuninn fyrir gömlu fjósafasistana.  Hinn heimski fjórðungur kjósenda flykktist á kjörstað og kastaði atkvæði sínu á glæ í veikri von um leiðréttingu húsnæðislána sinna.  Annar fjórðungur hélt enn tryggð við Sjálfgræðgisflokkinn.

Við hin héldum tryggð við sannfæringu okkar og kusum samkvæmt henni. Innan skamms munum við aftur ná stjórnartaumunum því enginn heilvita einstaklingur sættir sig mikið lengur við grímulaust dekur stjórnarflokkanna við útgerðina og landbúnaðinn.  Og það áður en Jói og Jóna á bolnum fá sínar leiðréttingar sem lofað var fyrir kosningar.

Þegar Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra er orðinn rödd skynseminnar í stjórninni þá megum við fara að vara okkur.  Gunnar Bragi Sveinsson sjoppukarl úr Skagafirði er ekki þess verður að sitja sem utanríkisráðherra hinnar íslensku þjóðar.  Hverjum datt sú vitleysa í hug.  Mér verður illt í hvert sinn sem hann birtist á skjánum með „supercut“ klippinguna sína og hrokaglott kattarins sem hefur óverðskuldað komist í rjómaskálina.

Svo bölvar þetta lið fráfarandi vinstri stjórn.  En fyrir hvað?  Fyrir að vera langt komna með að reisa landið upp úr hruni?  Ekki voru þau að gefa sautján milljarða skattaafslátt til LÍÚ og afnema auðmennaskatt á fyrstu dögum í embætti og svo hóta fólki frekari niðurskurði í velferðar- og menntakerfinu til að greiða fyrir gjafirnar.

Vissulega fór vinstri stjórnin stundum í taugarnar á mér með sínum boðum og bönnum en ég vissi að henni gekk vel til.  Hún var að vinna á skuldavandanum af heilindum.  Ég hefði viljað að hún hefði fengið fjögur ár í viðbót til að ljúka verkinu.

Og já, ég hefði viljað fá að kjósa um samning frá Evrópusambandinu.  Við erum nú þegar hálf inni.  Væri það ekki bara blessun fyrir litla Ísland að fara alla leið og ljúka ferlinu?  Það held ég.  Varla verra en ástandið er núna. Tökum Möltu til fyrirmyndar!  Þar er flest skárra frá inngöngu þeirra í sambandið.

Enginn er eyland!  Við þurfum á nánum tengslum að halda við nágranna okkar. Glötun fiskimiða og landbúnaðar er bara áróður þeirra sem vilja ekki selja samlöndum sínum fisk og kjöt á sanngjörnu verði.  Neita að stunda eðlileg viðskipti sem fela í sér að geta ekki leikið sér með gengi erlendra gjaldmiðla. Frábiðja sér því samkeppni að utan.

Bankarnir eru sama sinnis.  Vilja ekki missa vald sitt yfir húsnæðiskaupendum. Fastir og nær óhagganlegir vextir eru þeim ekki að skapi.  Þeir vilja geta hækkað afborganir fólks um þúsundir króna milli mánaða án múðurs.

Mér finnst margir kjósendur núverandi stjórnarflokka misskilja frelsishugtakið. Íhaldið og fjósafasistar eru engir talsmenn einstaklingsfrelsis.  Þykjast bara vera það til að fá óverðskilin atkvæði.

Samfylkingin og Píratar eru einu frelsisflokkar landsins.  Þeir einir gera ráð fyrir einstaklingsfrelsinu og reyna ekki að hefta það.  Allir aðrir flokkar hallast að fasisma.

Hneykslun mín

Hef undanfarið verið að hneykslast á fataauglýsingum þar sem barnungar stúlkur eru klæddar upp eins og fullorðnar konur.  Fór nýlega aðeins að pæla í hneykslun minni.  Hvað fer svona í taugarnar á mér?

Hér er ekkert klám á ferðinni.  Engin nekt eða misnotkun.  Bara einhverjir að klæða litlar stúlkur upp um aldur.  Hvern andskotann kemur mér það við?

Sömu rök eiga við hér og um allar myndir af konum á öllum aldri.  Ef einhver æsist kynferðislega upp við að skoða þær, þá er það hans eða hennar mál.

Að ég sé að fetta fingur út í myndbirtingar auglýsenda flokkast undir ritskoðun. Og lítilsvirðingu við konur.  Þær eru fullfærar um að verja sig sjálfar.  Hneykslun mín hjálpar þeim lítið.