Geðlyf dagsins

Örlítil hlustun á símatíma Útvarps Sögu er góður skammtur af geðlyfjum. Líður alltaf betur á eftir.  Sannfærir mig um að ég sé bara nokkuð góður á geði.  Fer að hafa áhyggjur um leið og ég fer að hringja þangað inn.

Datt inn í umræðu um skoðanir Gylfa Ægis á gleðigöngunni eða „fjólubláa rassa út úr leðurbuxum“ og „sleika“ karlmanna.  Gengið sem hringdi inn sló hann þó út. Einn sagði homma vera með „konuheila“.  Kona ein skyldi ekkert í hneyksluninni gagnvart komu Franlin Graham hommahatara til landsins.  Hann boðaði tært orð Guðs.

Gunnar óféti náði auðvitað inn og drullaði yfir samkynhneigða.  Sú vesæla sál hatar allt og alla en fær samt alltaf að láta ljós sitt skína í símatímunum. Heyrist bara á viðbjóðslegri rödd hans hve aumur hann er.  Félagi hans Guðjón komst þó ekki inn, en hann hatar reyndar bara konur.

Rekstraraðilar Sögu fatta ekki að venjulegt fólk nennir ekki að hlusta alltaf á sama gengið spýja út eitri sínu í símatímum stöðvarinnar.  Ekki flókið að setja upp síu og bjóða öðrum að tjá sig um málefni dagsins.

Haustmenningarnótt

Haustið nálgast og landslýð er að verða ljóst hvaða helvíti þeir kusu yfir sig enn einn ganginn.  Hvenær ætlum við að læra að flestir ef ekki allir stjórnmálaflokkar á Íslandi eru skipulögð glæpasamtök!

Menningarnótt næstu helgi með tilheyrandi strætisvagnaþurrð fyrri part dags og fullum foreldrum með barnakerrur um kvöldið.  Reyndar óvenju góð dagsskrá á sviðum beggja útvarpsstöðva.  Ljótt að sleppa því.  Má reyndar hlýða á báða tónleika beint.

Nenni nefnilega ekki niður í bæ.  Helvítis vesen að koma sér þangað og til baka. Er reyndar gaman að rölta um bæinn yfir daginn.  Fá sér eitthvað í gogginn og svo þrauka kvöldið.  Leiðinlegast finnst mér að leita uppi salernin.

Er reyndar löngu hættur að sulla á Menningarnótt.  Hef verið skraufþurr eins og klerkur við messugjörð síðustu árin.  Fer varla að breyta út frá vananum í ár ef ég skyldi slysast niður í bæ næsta laugardag.

Þjóðhollusta

Veit ekkert um fótbolta en finnst rosalega aumt af forystu KSÍ að heimta að Aron leiki fyrir íslenska landsliðið vegna þess að hann þjálfaðist upp hér í gegnum yngri flokkana.  Með sömu rökum mætti enginn flytja úr landi til að starfa erlendis.

KSÍ ætti virkilega að skoða sín mál og láta af frekjunni.  Samband sem finnst besta mál að einn fulltrúi sinn missi sig í erlendum strípiklúbbi með korti þess. Veit ekki betur en að sá gaur sé enn í vinnu laus allra mála.

Skil vel gremju forystu KSÍ að sjá á eftir efnilegasta leikmanni landsins til Bandaríkjanna.  En því verður ekki neitað að möguleikar hans að komast í heimsmeistarakeppnina eru mun betri vestan hafs.  Þannig er það nú bara.