Gleði alla daga

Var á leiðinni í Gleðigönguna en hætti við þegar fréttir bárust af því að strætókerfið væri sprungið.  Engir aukavagnar niður í miðbæ.  Samt var verið að hvetja fólk til að nýta almenningssamgöngur.  Skrítið?

Alltaf sama skipulagsleysið ár eftir ár.  Næst munum við verða vitni að þessu eftir tvær vikur þegar menningarnótt brestur á með látum.  Til hvers að hvetja fólk til að skilja bílinn eftir heima ef ekki er komið til móts við það með því að fjölga ferðum niður í miðbæ?

Finnst stundum eins og það séu samantekin ráð bæjanna sem eiga aðild að Strætó að hindra fólk í að komast á Gaypride og Menningarnótt.  Hvað á maður að halda?

Fullt af fólki er í nöp við hve margir láta sjá sig niður í bæ til að fylgjast með göngunni.  Skilur ekki að með því að styðja réttindi homma, lesbía, tvíkynhneigðra og transfóks, þá styðja þau mannréttindi yfir allan bálkinn; ekki síst sín eigin.

Svo eru alltaf trúarnöttararnir sem telja sig geta afhommað með hjálp Drottins. Þeir sömu og eru að flytja inn Franklin Graham í september.  Prestar í Þjóðkirkjunni sem telja sig hafa orðið fyrir vitrun rétt fyrir hrunið.  Kenna sig við Friðrikskapellu.

Agnes biskup ætlar að tala á þessari samkomu enda aldrei sagst vera því persónulega fylgjandi að samkynhneigðir fengju að giftast.  Og færðist undan svari þegar blaðamaður rukkaði hana um svar hvort hún myndi mæta í gleðigönguna, en það hefur hún víst aldrei gert að eigin sögn.

Á meðan Þjóðkirkja er við lýði þá eigum við heimtingu að hún fylgi lögum og stefnu samtímans.  Sé ekki í einhverju einkafokki gegn eigin samþykktum. Sjálfum finnst mér að löngu sé orðið tímabært að klippa á naflastrenginn milli ríkis og kirkju. Lífsskoðunarfélög eiga ekki að vera bundin í stjórnarskrá.

Þjóðhátíð í höfuðborginni

http://www.ruv.is/frett/kynferdisbrotamal-ekki-a-rokum-reist  Meintur nauðgari og meint fórnarlamb þekktust víst.  Þá er ekki um nauðgun að ræða samkvæmt lögreglunni í Eyjum.  Eða það les ég í þá ákvörðun að sleppa meintun nauðgara aftur inn í Herjólfsdal.  Bara til þess að endurtaka leikinn.

Í Eyjum eru nauðganir móðgun.  Um slíkt má ekki tala.  Konur eiga bara að passa sig inn í Herjólfsdal.  Enda er gæslan algjört grín ungliða björgunarsveita víðsvegar af landinu sem eru bara að hösla.  Gæsluliðar eiga vera atvinnufólk og hafa valdheimildir eins og Lögreglan.  Annars er um enga raunverulega gæslu að ræða.

Löngu orðið tímabært að fastalandið bjóði upp á alvöru hátíð í samkeppni við Þjóðhátið. Að íþróttafélögunum á Höfuðborgarsvæðinu verði gert kleyft að halda sambærilega hátíð.  Sem stenst allar kröfur um öryggisgæslu. Sem lítur ekki á nauðgun sem sök fórnarlambsins.

Þjóðhátíð í Eyjum má þó eiga það að vera stærsta útíhátíð landsins með ríkustu hefðirnar.  Ingó veðurguð eignaði sér brekkusönginn með eftirminnilegum hætti í gærkvöldi.  Aðdráttaraflið er að hátíðin fer fram á eyju.  Þangað þarf að sigla eða fljúga.  Foreldrarnir fara ekkert að banka upp á í sunnudagsbíltúrnum sínum.

Lögbann á Þjóðhátíðina?

http://www.sannleikurinn.com/forsida/content/%C3%A1rsh%C3%A1t%C3%AD%C3%B0-%C3%ADslenskra-nau%C3%B0gara-ver%C3%B0ur-haldinn-%C3%AD-herj%C3%B3lfsdal-um-helgina

Einu sinni var ég algjör Þjóðhátíðarnöttari.  Gat varla sleppt úr ári.  Fannst svo gaman í Herjólfsdal.  Fór í tíu skipti á árabilinu 1992 -2003.  Hef ekki farið síðan. Finnst þetta ekki vera sama hátíðin eftir að farið var að sigla frá Landeyjarhöfn og gestirnir náðu yfir fimmtán þúsund.

Eyjar hefðu betur tekið Bræðsluna á Borgarfirði Eystri til fyrirmyndar og ekki blásið út hátíðina.  Plássin þola bara svo mikið af fólki svo vel geti orðið.  Nú er dalurinn stjórnlaus þrátt fyrir nýtilkomnar eftirlitsmyndavélar.

Unglingadeildir björgunarsveitanna af landi hafa heldur aldrei gert mikið gagn. Ætti bara að sleppa þeirra framlagi.  Enda eru þau bara að hösla.  Jafnvel á vaktinni. Væri nær að ráða öryggisfyrirtæki til að sjá um gæsluna.  Alvöru fólk sem dregur drukkna gesti í skjól og kemur í veg fyrir nauðganir og líkamsárásir.

Þjóðhátíð í Eyjum er frábær hátíð en tekur á sig mynd Helvítis eftir að skyggja tekur. Þá fara rándýrin á stjá og leita að drukknum fórnarlömbum til að nauðga. Sérstaklega er mánudagsmorgun hættulegur.  Þá heimta þeir heilabiluðu hold um limina á sér eftir höslleysi helgarinnar.

Og konum er ekki bara nauðgað: http://visir.is/karlmonnum-er-lika-naudgad/article/2013707279965  Hópnauðganir fara fram fyrir augum gæslunnar sem lyftir ekki litla fingri enda bara þarna til að fá eitt fríkvöld gegn gæslugöngu hin tvö kvöldin.

Lögreglan er ekki kölluð í sjúkratjaldið þó ljóst sé að nauðgun hafi átt sér stað. Allt er gert til að þagga niður kynferðisglæpina.  Þeir birtast ekki í fréttum fyrr en eftir Verslunarmannahelgina.  Það er að segja þeir sem eru kærðir þrátt fyrir fortölur lögreglunnar í Eyjum.

Stígamótskonum er bannað að stíga inn í dalinn því þær drógu óvart dreng af stúlku að ósekju um árið.  Töldu hann vera að nauðga henni þegar gagnkvæm ástarlot voru í gangi.  Allt varð vitlaust og Þjóðhátíðarnefnd setti Stígamót í bann fyrir lífstíð.

Nú eru nauðgarar boðnir velkomnir.  Þeirra peningur er jafnmikils virði og annarra. Þjóðhátíð snýst um aurinn.  Ofbeldisglæpir eru fylgifiskar hennar.  Fólk verður bara að passa sig sjálft.  Þjóðhátíðarnefnd skilur ekki þetta röfl.

Ég mun ekki mæta aftur á Þjóðhátíð úr þessu.  Get ekki með góðri samvisku tekið þátt í hátíðarhöldum sem líta á það sem sjálfsagðan hlut að nokkrar nauðganir eigi sér stað yfir Verslunarmannahelgina.  Slík sátt um samtímann er fáranleg!  Slík sátt er uppgjöf fyrir þeim vanda sem blasir við.

Persónulega finnst mér að draga eigi nauðgara bak við hús og skjóta þá í hnakkann eins og óða hunda.  Skil ekki þessa eftirlátssemi gagnvart þeim fyrir dómstólum. Nauðgun jafngildir morði í mínum augum.

Næsta helgi mun verða mörgum að heilsutjóni því Þjóðhátíðarnefnd er gráðug. ÍBV my ass!  Hvað um sálarlíf þeirra sem verður nauðgað í dalnum næstu helgi? Skipta þau engu máli?

Ætti kannski að setja lögbann á Þjóðhátíð í Eyjum?