Lausaganga katta

Einhver ofstækismaður í mínu bæjarfélagi fer fram á bætur fyrir skemmdir sem lausir kettir hafa valdið garðinum hans.  Heimtar að lausaganga katta verði bönnuð rétt eins og hjá hundum.  Að slíkt sé bara tímaspursmál.  Svo sjálfsögð sé sú krafa.

Sjálfur bý ég á jarðhæð með alla glugga opna upp á gátt og enginn köttur smeygir sér inn til mín.  Kannski vegna þess að ég er yfirlýstur kattavinur. Gruna stundum að kettir heimsæki bara kattahatara.  Enda gáfaðir með góðan húmor. Þeir virðast finna fnykinn af dýrahöturum langar leiðir.

Örfáa ketti er hægt að hlekkja í taum.  Flestir hafna honum þó, ólíkt hundunum. Ég eins og flestir kattarvinir kann að meta hve miklir töffarar kettir eru.  Hve sjálfstæðir þeir eru. Persónuleikar.

Kattahatarar eru leiðinlegir.  Þeir sem hatast við gæludýr annarra vantar áhugamál. Lífið hlýtur að bjóða upp á meira en sífelldar deilur við nágranna út af smáatriðum eins og dýrahaldi.

Leyfum þeim að spýja eitri

Múslimaklerkur í Ýmishúsinu kallar samkynhneigða barnaræningja…í sínu landi það er að segja þar sem samkynhneigðir fá ekki að ættleiða. Einn að reyna að bjarga sér eftir að hann fattar að það varðar við lög hérlendis að halla á fólk vegna kynhneigðar.

Eðlilega eru fyrstu viðbrögð frjálslyndra Íslendinga að heimta höfuð klerksins. Að hann skuli rekinn úr landi.  Sömu kröfur og þegar prestur rússnesku réttrúnaðarkirkjunnar birti auglýsingu gegn Gaypride í fyrra.  En eru það réttu viðbrögðin?

Er ekki réttara að fara bandarísku leiðina og leyfa þessum pappakössum að blása að vild svo fólk fattar hve miklir fávitar þeir eru og þeir gleymast. Almenningsálitið sér um að hreinsa svona óværu burt á endanum.

Boð og bönn efla bara slíka fávita og fylgisfólk þeirra.  Því er réttast að greiða þeim leið að fjölmiðlum með bölvið sitt.  Svo fólk geti tekið afstöðu gegn því. Tjáningarfrelsið sér um svona kuflumklædda miðaldapresta.

Refsing að ofan

Hálft sumarið horfið í regn og þoku.  Veðurstofan lýgur því að 70 sólarstundir hafi ríkt í júlí.  Sá fáar af þeim.  Hljóta taka hinar björtu sumarnætur með í reikninginn.

Framhaldið er ekki beisið.  Ský og regn.  Megum þakka fyrir stöku þurran dag inn á milli.  Á ég kannski að skrifa þetta á mig fyrir að hafa keypt sólgleraugu?

Annars grunar mig að veðurguðirnir séu að refsa okkur fyrir að hafa kosið hrunstjórnina aftur yfir okkur.