Hengt sig í eigin heimsku

Fylgið færist smá saman frá Framsókn til Sjálfstæðisflokksins sem mun bráðum heimta Forsætisráðuneytið til baka.  Sigmundur Davíð veit þetta og vinnur því hörðum höndum að stofna ríkisolíufélag sem þeir feðgar geta svo sölsað undir sig eins og Kögun forðum.

Skítt með kosningaloforðin.  Þau eru öll komin í nefnd.  Og munu deyja drottni sínum í haust þegar Bjarni Ben. tekur við taumunum á ríkisstjórninni í kjölfar fylgistaps Framsóknar.

Til hamingju fíflin ykkar sem kusuð þessa fávita aftur yfir okkur!  Gerið mér greiða og hengið ykkur í eigin heimsku!

Hver er sinnar gæfu smiður

Samkvæmt femínismanum þá er flest okkur karlmönnum að kenna.  Við fundum til dæmis upp skó, hárgreiðslur og snyrtivörur til að kúga konur.  Svona álíka sennilegt og að þorri karla samtímans séu ekki skófíklar og umhugað um útlit sitt.

Nú kann að hljóma eins og ég sé ekki meðmæltur jafnrétti kynjanna.  Að femínistar fari í taugarnar á mér.  Því fer fjarri lagi!  Skil bara ekki sum rökin. Hvernig flest slæmt sem hendir konur sé okkur karlmönnum að kenna.

Að vera í hlutverki fórnarlambsins er engum til góðs til lengdar!  Hef sjálfur gengið í gegnum þau svipugöng.  Að kenna öllum öðrum um ógæfu mína og bresti.  Sem betur fer fann ég nógu skýran spegil til að horfast í augu við.

Frá þeirri stundu hef ég vonandi vaxið og gleymt að mestu þeim ímynduðu kúgurum sem áttu að hafa haldið mér niðri.  Við sköpum okkar fangelsi sjálf. Lokum okkur inni og bendum á aðra sem ímyndaða fangaverði.

Neitum að skilja að gæfan er undir okkur sjálfum komið!

Hvað varð af sumrinu?

„Dauði og salti jökull“ er tilvitnun eignuð Einari Benediktssyni skáldi um Ísland. Sjálfur er ég farinn að skilja hana eins og sumarið hefur verið hér á höfuðborgarsvæðinu.  Höfum varla litið bjartan dag frá því snemma í vor.  Regnið hefur verið stöðugt.

Sumarið 2013 hefur verið hástemmdur forleikur að haustinu.  Er farinn að halda að á Íslandi séu aðeins tvær árstíðir: haust og vetur.  Er nema von að fólk flykkist á ferðaskrifstofurnar þessa dagana og greiði toppverð fyrir flug héðan í sólina.  Geðheilsa heilu fjölskyldnanna er í húfi.

Varð staðnæmst við sólarvarnirnar í Bónus.  Hreyfðust greinilega hægt.  Ryk var farið að falla á fremstu flöskurnar.  Hér brennur enginn þetta sumarið.  Bravó! Og hinar björtu sumarnætur eru hljóm eitt undir skýjahulunni.  Þarf að kveikja ljós á kvöldin.