Femínistar

Mér finnst merkilegt hve karlar hræðast femínista.  Kalla þær öfgafemínista í hræðslu sinni.  Hæða þær og bölva þeim niður í dýpstu myrkur Helvítis.  Eru greinilega í vandræðum með karlmennsku sína og kenna konum um.

Öfgar eru nauðsynlegar þegar kemur að jafnréttismálum.  Hver kynslóð neyðist til að berjast fyrir jafnrétti kynjanna.  Og kjarnyrt íslenska dugir ein til að ná heyrnum fólks.  Feðraveldið er því miður of ríkjandi.  Stór hópur karla lítur enn á konur sem hluti og komast upp með það.  Því verður að breyta.

Slóðaþjóðin

Við Íslendingar erum slóðar upp til hópa.  Hendum rusli út um bílgluggann og ætlumst til að vinnuskólinn hirði upp eftir okkur yfir sumartímann.  Hrækjum hori út um allar götur.  Brjótum glerflöskur á götunni.

Verst þykir mér þegar frekjudallar á unglingsaldri bruna um gangstíga bæjarins á eldsneytisknúnum skutlum sem eiga heima á götunum.  Finnst reyndar að rafknúnu kvikindin sem gefa varla frá sér hljóð eigi líka heima á götunni. Göngustígarnir eiga að vera fyrir gangandi fólk.

Reiðhjólastígarnir í Reykjavík eru snilld.  Kópavogur tekur höfuðborgina vonandi til fyrirmyndar og leggur slíka samhliða göngustígum bæjarins.

Asnalegt

Dónakall og barnaníðingur kemst óhindraður inn í hús fólks til að svala sjúkleika sínum og enginn spyr af hverju dyrnar voru ólæstar.  Hvað er fólk að pæla með því að hafa ólæstar dyr?  Býður bara hættunni heim.

Og löggan sleppir honum bara vegna þess að þeim dettur ekki í hug að fletta upp kennitölunni hans.  Myndbandaleigur heimta hjá manni kennitölu en löggan aðeins nafn.  Hversu ruglað er það!