„Faðir, fyrirgef þeim því að þeir vita ekki hvað þeir gera“

Svona í vikulokin á sumarþinginu ítreka ég orð mín frá úrslitum kosninganna þegar meira en helmingurinn samtals kaus yfir okkur núverandi stjórn: „Faðir, fyrirgef þeim því að þeir vita ekki hvað þeir gera“ (Lúkasarguðspjall 23:34).

Rosalega held ég að þessu ágæta en trúgjarna fólki líði illa í ósmurðum endaþarminum.  Verra er að við hin sem kusum samkvæmt sannfæringu, en ekki eftir því hver lofaði mestu, neyðumst líka til að sitja uppi með þessa stjórn frá Helvíti.

Ekki nóg með að ráðherrarnir séu vitgrannir búrar á framfæri LÍÚ, útrásarvíkinga og Bændasamtakanna, heldur er formaður fjárlaganefndar (valdamestu nefndarinnar) vanvitinn Bibba á Brávallagötunni = Vigdís Hauksdóttir.

Guð hjálpi okkur!  Ísland er á hraðferð í annað hrun í innkaupakerru stjórnað af tómum hálfvitum sem hugsa bara um eigin rass og hinna sem reka seðlabúntin upp í rassgötin á þeim gegn greiða.

Löngu tímabært að eitthvert af þessum fíflum sé skotið á færi hinum til viðvörunar.  Fulltrúalýðræðið er úrelt.  Beint lýðræði strax í gegnum netið. Annars mun ekkert batna.

Nýjasta nýtt

Nýjasta nýtt fyrir utan alskegg og slæðu um hálsinn er að þykjast vera alkahólisti í bata.  Hvernig viðkomandi hafi loks fundið sig eftir að áfengið var horfið úr lífi þeirra.  Leiðinlegasta fólk í heimi!

Skil ekki alveg pælinguna með að vera nafnlaus alki á vikulegum fundum AA-samtakanna en baða sig svo í sviðsljósi fjölmiðla þess á milli fyrir að vera loks laus við áfengið.  Undarleg tvöfeldni.

Durgurinn

Menn tæpir á bindindinu á föstudögum eru frekar sorglegir.  Einn slíkur stöðvaði bifreið sína fyrir utan vinnustað minn þar sem tvær samstarfskonur mínar stóðu og hreytti út úr sér að þær ættu að halda áfram að vinna í stað þess að hanga þarna og reykja.  Hann greiddi sína skatta og vildi að þeim væri betur varið.

Gildir einu hvort þær voru að reykja eða fá sér ferskt loft.  Kom honum ekkert við.    Önnur þeirra lét ekki bjóða sér svona dónaskap og svaraði karldurginum fullum hálsi þar til hann gafst upp og brunaði í burtu.  Frekjan í sumu fólki.

Merkilegt þegar svona kurfar hella sér yfir fólk.  Rétt missti af því um árið þegar geðbilaður gaur með barnið sitt ætlaði að hjóla í mömmu í bílageymslunni undir Smáratorgi fyrir að standa út í horni og njóta reyksins með sjálfri sér. Gaurinn froðufelldi af bræði og gerði sig líklegan til að leggja hendur á gömlu þegar hún vogaði sér að svara honum.

Sé enn eftir að hafa ekki látið karldurginn sem hellti sér yfir afgreiðsludrenginn í Nettó heyra það.  Greyið vann sér það eitt til saka að biðja um greiðslu fyrir vörurnar þegar karluglan raðaði pollrólega í pokana meðan röðin lengdist við kassann.

Fáranlegt að lífsleiðar leiðindaskjóður komist sífellt upp með slíka frekju og yfirgang.  Svona hegðun á ekki að líðast.  Við eigum ekki að þegja meðan risaeðlur láta öllum illum látum, heldur gefa þeim duglegt spark í afturendann.