Þetta kusuð þið!

Nenni ekki lengur að pirra mig á ráðamönnum þjóðarinnar.  Þessu hyski sem hinn helmingur þjóðarinnar hefur kosið yfir sig.  Sama Framsóknarlið kaus Ólaf Ragnar sem forseta í fyrra.  Gott ef Guðni konur-eiga-heima-bak-við-eldavél Ágústsson hafi ekki séð til þess.

Framsóknarmafían er veruleikafirrt og velur sér sinn sannleika hverju sinni. Nú er Evrópu allt í einu engin alvara með að samþykkja umsókn okkar samkvæmt forsetafíflinu.  Og þjóðin vill ekki kjósa um hvort eigi að halda áfram umsóknarferlinu að ESB að mati Sigurðar Inga sveitamanns.

Mikið er gott að eiga alvitra leiðtoga!  Forðar mér frá því að þurfa að hugsa sjálfstætt.  Meðan þessir tveir snillingar einblína á Grikkland þá horfum við hinn helmingurinn til Danmerkur, Svíþjóðar, Þýskalands og Frakklands.

Ömurlegt að fámenn klíka kvótabaróna og bænda skuli leyfast að halda heilli þjóð í heljargreipum vegna þess að þeir þora ekki í smá samkeppni við heiminn í kringum okkur.

Af hverju neyðumst við til að greiða hærra verð fyrir allar vörur vegna ótta og minnimáttarkenndar nokkurra íhaldsmanna og fjósafasista? – Vegna þess að við erum vitleysingar sem kjósum sífellt yfir okkur enn meiri vitleysinga til að stjórna landinu.

Atvinnuleysið

Mér verður illt af að hlusta á fullyrðingar fyrri stjórnar að atvinnuleysi sé hverfandi á Íslandi í samanburði við Evrópu.  Velferðarstjórnin gerði margt gott en hún eyddi ekki atvinnuleysi.

Gaman verður svo að sjá hvort stjórn silfurdrengjanna tveggja muni snúa dæminu við einn, tveir og þrír í sumar.  Skapa fullt af störfum í öllum álverunum og kísilverunum sem eru að fara að rísa.  Útrýma atvinnuleysi með einu pennastriki.

Hvaðan orkan á að koma er öllum hulið.  Seinni tíma vandamál.  Og skítt með það þó álverð sé í sögulegu lágmarki.  Stóriðja skal það vera.

Bibba á Brávallagötunni

Vigdís Hauksdóttir er skondin þingkona.  Með meira sjálfstraust en henni er hollt og sífellt að misstíga sig á hálu svelli Íslenskunnar.  Er náskyld frænka Bibbu á Brávallagötunni.  Edda Björgvins hefði ekki getað fundið hana upp.

Hún var svo örugg fyrir kjördag að fá ráðuneyti til að fokka með.  Og skilur ekkert í að Eygló hafi verið tekin fram fyrir hana.  Telur jafnvel einhvern huldumann vera á launum við að níða af henni skóinn á netinu þegar flestir okkar myndu gera það endurgjaldslaust með glöðu geði.

Vigdís er Árni Johnsen Framsóknarflokkssins.  Hún mun aldrei verða ráðherra!  Ekki frekar en Árni sem hefði getað krafist ráðuneytis ótal sinnum sem oddviti flokksins í sínu kjördæmi.  Hann fékk feita bitlinga í staðinn sem urðu honum loks að falli.

Hið fyndna er að Vigdís rétt eins og Árni er ekkert verri en fávitarnir sem nú þegar hafa vermt ráðherrasæti og gera einmitt nú.  Vekur bara meiri athygli fyrir ummæli sín og skoðanir og er ekki formanni sínum þóknanleg.  Lætur ekki að stjórn og getur því ekki orðið ráðherra.