Dagar víns og rósa

Dagar víns og rósa hófust í dag á Laugarvatni og munu víst standa næstu fjögur árin.  Hunang mun drjúpa af hverju strái, gull og olía finnast í hverjum firði og skuldir heimilanna gufa upp eins og dögg fyrir sólu.

Verður maður ekki að vera jákvæður og bjartsýnn eins og helmingurinn af hræðunum sem búa á þessum kletti?  Gefa þessum strengjabrúðum smá séns til að breyta landinu í paradís á jörðu.  Þó ekki fjögur ár.

20 ára stúdent

Eins og álfur út úr hól slæddist ég upp í MK á föstudaginn sem einn af 20 ára stúdentum.  Eini strákurinn í mínum árgangi ásamt sex eða sjö stelpum.  Slök mæting hjá yfir 50 manna hópi.  Hvar var allt fólkið?

Hékk þarna í tæpa klukkustund svitnandi eins og svínið sem ég er.  Enginn opinn gluggi og dregið fyrir þá alla.  Fékk netta innilokunarkennd meðan á ræðu Margrétar skólameistara stóð.  Félagsfælnin spratt upp úr löngu gleymdum fylgsnum.

Lét mig hverfa án þess að kveðja kjaft.  Leið eins og ég væri staddur kvikmyndinni Groundhog Day nema allir voru tíu árum eldri.

En ætli ég mæti ekki aftur að áratug liðnum til að heiðra skólann minn.  Bjóst aldrei við því að verða stúdent.  Kom mér á óvart að ná því takmarki á sínum tíma.  Þess vegna mæti ég alltaf eins og asni.  Til að þakka fyrir mig.

Mæta kannski fleiri að áratug liðnum.

Hvenær kemur vorið?

Þrái hlýrra veður svo ég geti nú dröslast á reiðhjóli í og úr vinnu.  Er alveg kominn með upp í kok á strætisvögnum.  Stórskrítnir einstaklingar sem slæðast þar með okkur hinum.

Fyrir helgi var þar stór kona eins og ég sem lét ekki samferðafólk sitt í friði. Sérstaklega ekki unga og myndarlega gaura.  Var alltaf að reyna ná sambandi við þá þar sem þeir sátu spakir með tónlist í eyrunum.  Vandræðalegt að horfa upp á.

Verri eru þó miðaldra skápahommarnir sem mæna á mig alla leiðina í og úr vinnu. Þrá greinilega mjúkan gaur til að þrykkja duglega í rassinn.  Ég er bara ekki á sömu síðu og þeir.  Sorry!  Annars væri ég sennilega ferlega hamingjusamur. Slíkt er áreitið.