Ofbeldi er síðasta hálmstráið

Að bregða sér í Ríkið getur verið ævintýri út af fyrir sig.  Þar eru flestir flóttalegir og í miklum flýti.  Sérstaklega miðaldra karlar.  Konurnar virðast ekki skammast sín eins mikið fyrir að fá sér brjóstbirtu.

Karldurgur um sjötugt á undan mér urraði önugur að afgreiðslugaurnum þegar hann hafði farið í gegnum pokann sinn með bjórkassann af tómum klaufaskap. „Hverskonar pokar eru þetta eiginlega!“  Vildi frekar fela fenginn en nota handfangið á kassanum.

Afgreiðslugaurinn sagði réttilega er fúll á móti var farinn að einhver hefði farið röngu meginn fram úr.  Ég svaraði að þetta væri greinilega allt honum að kenna og við glottum saman ásamt eldri konu í röðinni.  Sumir eiga ekkert erindi meðal fólks.

Ég var á tveimur jafnfljótum til að slá tvær flugur í einu höggi og fá smá hreyfingu út úr syndum mínum.  Setti bjórkassana tvo í hentuga og margnota Bónuspoka og arkaði af stað.  Komst ekki langt því einhver miðaldra gosi stöðvaði mig fyrir utan mjólkurbúðina og gerði athugasemd við að ég væri að auglýsa Bónus á svona áberandi hátt.

Mér fannst þessar athugasemdir svo fáranlegar að ég svaraði bara hátt og snjallt: „Haaa!!!“ og sendi gaurnum illt auga.  Strunsaði svo mína leið.  Hvern djöfulinn kom honum við hvernig poka ég nota til að bera bjórinn heim úr okurbúllu ríkissins.  Langaði mest til að skalla gerpið en lét það vera.

Fannst fulllangt gengið að ganga í skrokk á manninum fyrir andúð sína á Bónus. Hann verður bara að eiga það við sjálfan sig.  Auk þess hef ég aldrei beitt neinn ofbeldi af fyrra bragði.  Þrátt fyrir ótal langanir í þá átt í gegnum ævina.  Tel það mér til tekna.  Ofbeldi er síðasta hálmstráið.

Eftir Eurovision

Danmörk vann auðvitað og við í sautjánda.  Megum þakka fyrir að hafa komist í aðalkeppnina með þessi leiðindi.  Söngvarinn bjargaði okkur þangað með óaðfinnanlegum söng, framkomu og sjarma.

Við karlmenn erum einfaldar skepnur en við þekkjum sigurvegara strax og þau birtast.  Í okkar augum var löngu ljóst að Emilie hin danska myndi sigra en að aðrar þjóðir myndu þó bíta í hælana á henni.

Á íslenska netinu héldu fáar konur með Dönum og bölvuðu flytjandanum fyrir að vera berfætt eins og Loreen í fyrra.  Konur eru konum verstar.  Frekar kusu þær dökkhærða gaura með loðnar augabrýr.  Meira að segja hinn ungverski Ásgeir Trausti með húfuna sína komst langt.

Til hvers að klæðast húfu innandyra?  Eða setja á sig sólgleraugu eins og Armeníurokkararnir?  Tær sýndarmennska!  Ég er að minnsta kosti sáttur við að Rúmenía vann ekki með kontratenórsyngjandi vampírunni sem bar kross um hálsinn niður á bringu.

Lýðræðið er blekking!

Sitting on a sofa on a Sunday afternoon
Going to the candidates debate
Laugh about it, shout about it
When you’ve got to choose
Ev’ry way you look at it, you lose

Simon and Garfunkel: Mrs. Robinson

Skiptir engu hver er kosinn.  Ekkert breytist.  Sama ruglið heldur áfram með örlítið breyttum forsendum.

Misskilningur kjósenda felst í því að trúa á mátt lýðræðissins.  Hugtaks sem hin ráðandi stétt kom með sem mótleik þegar bróðurpartur hins franska aðals hafði verið gerður höfðinu styttri með fallöxinni.

Lýðræðið var fundið upp til að sefa lýðinn.  Láta okkur trúa því að atkvæði okkar skipti einhverju máli í heildarmyndinni.  Svo er ekki og hefur aldrei verið.  Við kjósum og kerfi elítunnar túlkar svo úrslitin sér í hag.

Klárum byltinguna og hlífum engum hefðarhálsi.  Löngu tímabært að uppræta gamlar valda- og forréttindastéttir.  Öðruvísi verður engin framtíð fyrir okkur hin.