Hér heillar fátt lengur

Stjórnarmyndunarviðræður taka að eilífu og enginn gerir athugasemd við ferlið. Ekki  einu sinni bóndinn á Bessastöðum.  Greinilegt orðið að þessir tveir flokkar eiga erfitt með að mynda stjórn.  Eitthvað stórt stendur í þeim.

Kannski kosningaloforðin sem þeir þurfa augljóslega að éta ofan í sig.  Nú er verið að smíða afsökunarbeiðnirnar hví komandi stjórn getur ekki orðið við þeim. Ástandið sé svo slæmt eftir stjórn vinstri flokkanna (þ.e. hrunflokkana sjálfa).

Skammur tími mun líða uns helmingur þjóðarinnar sér eftir að hafa kosið Silfurskeiðabandalagið yfir sig.  Einbeittur brotavilji þeirra hræðir mig.  Þeir ætla strax að uppræta stjórnkerfisbætur fyrri stjórnar og fjölga aftur ráðuneytum svo nægilega margir þingmenn fái nú bitlinga í formi ráðherraembætta.

Skattalækkanir gjaldþrota þjóðar kosta niðurskurð á velferðarkerfinu.  Afskriftir á lánum heimilanna kosta margra ára málaferli gagnvart gráðugum vogunarsjóðum. Samt kaus helmingur þjóðarinnar þessa fávita til valda.

Nú skil ég af hverju þessir flokkar vilja stytta námstímann að stúdentsprófi og menntun almennt.  Svo lýðurinn verði enn ómenntaðri og kjósi þá frekar.  Trú mín á þessu landi fer sífellt þverrandi.  Er farinn að safna fyrir brottförinni.  Hér heillar fátt lengur.

Strætóblús

Verð að fara hjóla í vinnuna.  Meika ekki lengur óþefinn af samfarþegum mínum í strætó.  Getur þetta lið ekki drullað sér í steypibað öðru hverju!  Og af hverju þurfa sumir að leysa vind alla leiðina eins og þeim sé borgað fyrir það.

Kannski vegna þess að þeir sjá fram á borgun þegar þeir loks losa úr skottinu í vinnunni á kaupi. Halda í sér svo þeir fái nú örugglega greitt fyrir taflið við páfann. Þessir sömu gaurar stela kaffi og salernisrúllum af vinnustaðnum með sér heim.  Ótrúlegt lið.

Hef heyrt af sumum sem gera bara stykki sín í yfirvinnu eftir kvöldmat. Öðruvísi njóta þeir þess ekki.  Annars gera þeir þau ekki.  Þetta lið á að leita sér læknishjálpar.

Réttlætið sigrar að lokum

Ég var fyrir löngu síðan búinn að missa trúna á réttarkerfið þar til í gær þegar Hæstiréttur dæmdi í máli Vatnsendalands.  Eignarrétturinn færist aftur á dánarbú þess sem byggði upp landið.  Afa núverandi ábúanda og föður tveggja sona af seinna hjónabandi sem voru bornir út af bænum með lögregluvaldi á sínum tíma.

Verst að móðir þeirra lifði ekki til að verða vitni að þessum réttarsigri og viðurkenningu.  Var rekin allslaus af bænum með lögregluvaldi með tvo litla drengi til að byrja upp á nýtt.

Nú er það undir skiptastjóra að dreifa arfinum á sanngjarnari hátt meðal allra erfingjanna.  Hitt var hreint rán og frekja.  Réttarmorðssaga sem ég hafði oft heyrt í æsku.  Rétt eins og um Guðmundar- og Geirfinnsmál.