Dökk ský safnast saman við sjóndeildarhringinn

Myrkrahöfðingjarnir tveir hefja formlegar stjórnarviðræður í dag.  Ræða hvernig þeir geta skipt landinu á milli sín og komið því aftur á hausinn innan fjögurra ára.  Helmingur kjósenda vill þetta.  Guð hjálpi þeim því þau vita ekki hvað þau gera.

Niðurfelling skulda á kostnað erlendra vogunarsjóða er draumsýn ein sem krefst lagaklækja fyrir dómstólum.  Skattalækkun nú verður ávallt á kostnað þeirra sem minnst mega sín.  Tilvonandi stjórnarflokkar spenntu bogana sína of hátt og vita það.

Þeir neyðast til að svíkja helstu loforð sín sem þeir voru kosnir út á og halda áfram uppbyggingarstarfi vinstri flokkanna.  Annars mun ekkert gerast hér næstu árin nema út á krít í gegnum bankana.  Sem er ávísun á annað hrun.

Hefði haldið

Álfasalan fer senn í hönd.  Hef aldrei skilið það dæmi.  Við borgum offjár fyrir áfengi úr Ríkinu en þurfum samt að þola betlandi álfasölufólk á götum úti. Hefði haldið að tekjur ÁTVR dygðu fyrir forvarnar- og meðferðarstarfi landsins.

Óvæntar aðstæður

Fattaði á föstudaginn að ég er stórskrítinn.  Hitti tvær vinkonur fyrir utan Krónuna og önnur þeirra bauð mér far heim eftir verslunarferðina.  Ég fríkaði út.  Meikaði ekki að þær myndu sjá hvaða óhollustu ég setti í körfuna mína.

Afþakkaði því farið og reyndi mikið til að verða á eftir þeim inn í sjoppuna svo leiðir okkar myndu ekki víxlast.  Fáranlegt.  Leifar af félagsfælninni að verki. Næ stundum ekki stjórn á óvæntum aðstæðum.