Segir mér enginn fyrir verkum

http://www.pressan.is/Frettir/Lesa_Innlent/vard-fyrir-aras-a-klambratuni-eg-var-skjalfandi-af-hraedslu-og-atti-erfitt-med-ad-halda-aftur-af-tarunum

Ömurlegt hvernig fólk getur brugðist við einföldum tilmælum. Lausaganga hunda innan borgarmarkanna er bönnuð.  Líka á Klambratúni.  Börn sem ekki umgangast dýr daglega geta hræðst þau. Lágmark að taka tillit til þess.

En nei, bolurinn sem átti hundana fannst rétt að koma sínum sjónarmiðum fram með ofbeldi.  Aumingi sem myndi aldrei dirfast að ráðast svona á aðra þursa.  Vesalingur sem leggur sennilega líka hendur á konuna sína og hundana tvo.

Er skrítið að maður vogar sér ekki að gera athugasemd við hegðun fólks á förnum vegi.  Gæti kostað mann lífið.  Oft hefur mig langað til að segja eitthvað þegar fólk reykir inn í strætóskýlum en látið það vera af ótta við að fá á kjaftinn.  Hvað þá þegar menn eru rekandi við og hóstandi á mann inn í vagninum.  Hvað er málið?

Íslenskir karlmenn eru margir hverjir þvílík skítmenni.  Og þykja flottir fyrir vikið. Bera vott um sjálfstæði og þor.  Fáranlegt!  Svona ræfla á að leiða bak við hús og berja duglega.  Yfirgangsseggir eiga hiklaust að fá hnefa í andlitið.  Annars halda þeir áfram út í hið óendanlega í frekju sinni.  Þeir skilja ekkert annað en ofbeldi.

Valkvíðinn

Sex dagar til kosninga og ég er enn harður á því að kjósa ekki bófaflokkana tvo sem komu okkur á hausinn.  Þrátt fyrir fagurgala þeirra um niðurfellingu skulda og skatta.  Tillögur þeirra eru ekki raunhæfar.

Við sem þjóð erum ekki komin í gegnum brimskaflana.  Enn bíður okkar snjóhengja gjaldeyrishafta og einbeittur brotavilji þorra þjóðarinnar sem ætlar sér að kjósa á ný yfir sig hrunflokkana tvo.

Kominn tími til að liðið noti minnið og forðist vítin.  Fáranlegt að leiða þessi tvö glæpasamtök aftur til valda vegna þess eins að við erum orðin leið á baráttunni.  Fjölmiðlar úti í heimi skilja ekkert í okkur.  Ég skil heldur ekkert. Loksins þegar við sjáum fyrir endann á göngunum.

Það er enga frekari leiðréttingu á lánum heimilanna að fá.  Erum of sein. Hefðum þurft að fá slíkt fram strax í byrjun og kalla það 70% leiðina en ekki 110% leiðina. Bankavinirnir Gylfi Magnússon og Árni Páll klúðruðu því í upphafi hrunsins.

Sá síðarnefndi tryggir að ég kýs Samfylkinguna ekki í ár.  Fáranlegt að hafa Sjálfstæðismann í sauðagæru í forystu fyrir jafnaðarmannaflokk. Var bara kosinn því konunum finnst hann svo sætur.  Svei mér þá ef Gubbi hefði ekki verið skárri kostur.

Þrjú framboð af fjórtán afgreidd.  Nú er bara að velja milli hinna ellefu.  Úff!

Frekar vinstri en annað hrun

Liðið sem kýs vanalega íhaldið og fjósafasistana segist ekki geta hugsað sér að kjósa til vinstri.  Flytur frekar fylgið á milli hrunflokkanna tveggja. Þetta fólk hefur ekkert minni og einbeittan brotavilja.  Því verður ekki bjargað.

Vissulega má margt slæmt segja um fráfarandi ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri-Grænna.  Sérstaklega dekurmálefni kommanna um himinháa skatta á áfengi, tóbak og raunar allt annað.  Lyfjalögin sem munu koma einhverjum öryrkjanum og gamalmenninu í gröfina.  16 þúsund krónur eru of há upphæð fyrir þau á einu bretti.

Árangur hinnar fyrstu hreinu vinstri stjórnar á efnahagssviðinu verður seint hrakinn.  Hún bjargaði landinu frá gjaldþroti þrátt fyrir byrjunarörðuleika eins og Icesave sem þjóðin hafnaði og dómstóll EFTA dæmdi okkur í hag.

Vinstri stjórnin þarf önnur fjögur ár til að koma landinu á á réttan kjöl.  Ef hrunflokkarnir komast að þá er árangurinn fyrir bý og sama ruglið fer í gang til þess eins að vinstriflokkarnir neyðast til að byrja upp á nýtt árið 2017. Viljum við það?

Vissulega erum við svekkt og viljum ekki frekari stjórn til vinstri.  En trúir fólk því virkilega að betri tíð með blóm í haga blasi við með stjórnarskiptum til hægri.  Velferðarkerfið verður þá endanlega lagt niður.  Lánasukkið hefst á ný.  Fasteignabólan blæs aftur út.  Landið fyllist af pólskum verkamönnum.

2007 var fölsk draumaveröld sem snýr vonandi aldrei aftur.  Síst af öllu með kosningaloforðum.  Sættum okkur við þann sannleik og verum þakklát fyrir það sem við þó höfum.  Við erum enn í nokkuð góðum málum.