Ég sakna Alþýðuflokksins

Fésbókin er súr þessa dagana.  Full af skoðunum fólks og áróðri sem mér kemur ekkert við.  Hverjum er ekki sama hver klúðrar stjórn landsins næstu fjögur árin.

Ég er súr út í núverandi stjórn fyrir að dempa nýja lyfjagreiðslukerfinu á okkur.  Sé ekki hvernig öryrkjar og aldraðir geta hafið þátttöku sína í því. Flest fólk endurnýjar skammtinn sinn á þriggja mánaða fresti.  Sjálfur sé ég fram á að greiða 25 þúsund krónur í júní fyrir lyfjasúpuna mína.

Er þó þakklátur fyrir þátttöku ríkissins í tannlækningum barna næstu árin. Er mjög til bóta.  Sé þó ekki hvernig ég get stutt Samfylkinguna áfram með Árna Pál sem formann.  Gaurinn er á frekar heima í Sjálfgræðisflokknum með alla sólbrúnkuna og vináttu sína við bankana.

Ég sakna Alþýðuflokksins.

Grátið í beinni

Ömulegt að horfa á Bjarna Ben. grenja sig áfram sem formann Sjálfgræðgisflokksins á RÚV.  En samt svo sætt því að varla fer fylgið upp með slíka grenjuskjóðu sem leiðtoga.  Og þó, alltaf til einhverjir fávitar sem líta á svona leiksýningu sem mennsku og taka upp á þeirri vitleysu að kjósa þennan bófaflokk í kjölfarið.

Sama fólk tekur ekki eftir að Bjarni hefur farið í yfirhalningu á síðustu vikum. Hætt að ganga með bindi og vatnsgreiða hárið eins og bankadrengur.  Gráu hárin fá jafnvel að njóta sín.  Allt gert til að keyra upp fallandi fylgi flokksins.

Vonandi falla engir í gildruna.  Ísland á betra skilið.

Hvar er réttlætið?

Allir eru svo uppveðraðir yfir fylgi Framsóknar en enginn fattar þarna er á ferð hið fasta fylgi íhalds og fjósafasista sem fer aldrei út fyrir sinn þægindaramma til annarra framboða.  Spurningin snýst bara um hvort að Sigmundur Davíð eða Bjarni muni leiða komandi stjórn.

Við Íslendingar erum fávitar upp til hópa.  Kokgleypum innantóm loforð hrunflokkanna um betri tíð og blóm í haga.  Höfum ekki í okkur þá þolinmæði sem er nauðsynleg til að komast almennilega í gegnum hrunið.  Fjögur ár nægja ekki.  Annað kjörtímabil er nauðsynlegt með sitjandi stjórn.

Hin fyrsta hreina vinstristjórn hefur gert sitt besta en féll auðvitað í þá gryfju að reyna koma sínum blautustu draumum að þegar hún hefði betur átt að iðka smá sjálfsstjórn.  Fólk í kreppu nennir ekkert að hlýta frekari bönnum og reglum.  Ekki heldur að greiða hærri skatta fyrir ofurskattað áfengi og eldsneyti.

Hefði velferðarstjórnin bara sleppt þessu runki sínu og látið vera að halda eftir hækkun hjá öryrkjum og öldruðum, þá ætti hún kannski möguleika 27. apríl.  Hefði hún sýnt smá þor og heimtað meiri afskriftir frá slitastjórnum bankanna, þá hefði 110% leið Árna Páls Árnasonar verið sanngjörn 70% leið heimilanna.

100% hefði verið mun betri leið.  Þannig hefði fólki ekki fundist því vera refsað fyrir að hafa fjárfest í húsnæði.  Verst er að þær litlu aðgerðir sem stjórnin hefur ráðist í hafa bara gagnast skussunum sem skuldsettu sig upp í rjáfur.  Þeir sem tóku rífleg lán og keyptu sér jeppa og rándýrt innbú fyrir afganginn.

Samviskusömu einstaklingarnir sem fóru varlega og greiddu skuldir sínar eru núna við að missa húsin sín.  Skussarnir sigla hinsvegar lygnan sjó með allt sitt afskrifað.  Hvar er réttlætið í því?  Hér er á ferðinni hreint siðrof þar sem fólki er refsað fyrir að vera ærlegar manneskjur.