Lóan er komin!

Vorið virðist ætla að koma snemma hér á suðvesturhorninu eftir annars mildan vetur.  Að því gefnu að páskahretið láti okkur í friði.  Smáfuglar eru byrjaðir að syngja hver í kapp við annan undir morgun.

Annars er nú líklega of snemmt að byrja að fagna.  Ísland á það til að læðast aftan að okkur.  Jafnvel í maí eða júní með snjó og kulda.  Við búum víst á miðju Atlantshafi.

Þegar þar að kemur

13. mars 2013 kl. 22:20:  Loksins orðinn fertugur! Atvinnulaus án bóta og ferðafrelsis, barnlaus, eignalaus, gráhærður, þunnhærður offitusjúklingur með áunna sykursýki og of háan blóðþrýsting sem er haldið niðri með hnefafylli af töflum dag hvern.  GLÆSILEGT!

Má víst þakka fyrir reykleysið og að drekka mig ekki lengur í svefn. Framtíðin er björt en samt ekki svo björt að ég fari að kjósa Bjarta Framtíð Framsóknar og Samfylkingar.  Ég þekki úlfa í sauðagæru.

Fannst ég vera mun eldri þegar ég varð þrítugur en í gær.  Varð eitthvað svo rosalega gamall þá.  Og fór líka endanlega út af sporinu næstu ár á eftir.  Núna líður mér eins og nýslegnum túskildingi.

Laus við barnalegt ruglið og vanmáttinn.  Sjálfshatrið og kjarkleysið. Reiðina. Engan veginn fullkominn en í ferli í átt að sjálfum mér.  Hlakka til að hitta mig þegar þar að kemur.

Þegar ég verð stór

Andskotinn!!!  Klukkuna vantar kortér í fertugt.  Rosalega er maður orðinn aldraður.  Passlegt að panta pláss á elliheimilinu.  Sækja um lífeyrir.  Setjast í helgan stein.

Nei, ætli það.  Kominn tími til að hætta þessu hangsi og fara gera eitthvað af viti.  Á bara eftir að komast að því hvað mig langar til að verða þegar ég verð stór.