Minningin nægir mér

Ekki nennti ég að druslast á 25 ára afmælistónleika Sálarinnar við Hlíðarenda í gærkvöldi.  Ekki frekar en á 20 ára geimið í höllinni.  Er ég orðinn svona rosalega gamall?

Hefði kannski þrælað mér í hópi með öðrum Sálarverjum.  Kannski!  Meika ekki lengur svitastorkin þrengsli í þeirri veiku von að endurupplifa æskuna með hljómsveitinni sem ég féll fyrir eitt laugardagskvöld sumarið 1988 þegar hún kom fyrst fram á RÚV í skemmtiþætti sem Ómar Ragnarsson, Sigmundur Ernir og Agnes stýrðu.

Minningin er oft betri.  Jafnvel þó sveitin hafi síst glatað kraftinum.

Hvernig væri að opna augun!

Gubbaði á eldhúsdagsumræðurnar í gærkvöldi.  Djöfulsins viðbjóður þingmanna að lofa upp í ermarnar á sér og skíta út andstæðinginn.  Fannst Birgitta Jónsdóttir standa upp úr.  Ein af fáum heiðarlegum einstaklingum við Austurvöll.

Fyrir mér er hún boðberi netfrelsis.  Flestir fjórflokkanna gæla við að setja bönd á netið með lagasetningu.  Slíkar pælingar fara illa í mig.  Netið er frjálst með öllum sínum kostum og göllum og á að vera það áfram.

Internetið er helsta samfélagsbylting mannkyns síðan að Gutenberg kynnti prentvélina fyrir Evrópu á fimmtándu öld.  Við megum ekki setja hömlur á hina frjálsu hraðbraut upplýsinga.  Alnetið er síðasta vígi okkar sem aðhyllumst frjáls skoðanaskipti.

Netið er nútíð og framtíð hinnar íslensku þjóðar.  Við eigum að grípa tækifærið og lokka til okkar erlend fyrirtæki. Hýsa netsíður þeirra í okkar kalda lofti fyrir sanngjarnt gjald.  Hér er friður og lítil hætta á stríðsátökum. Helst að jarðskjálftar og eldgos ógni okkur.  Eitthvað sem truflar ekki netbú reist og rekin á byggðum bólum landsins við hafið.

Steingrímur Joð lofar öllu mögulegu svo einhvers konar ver megi rísa við Húsavík en tekur ekki netbú inn í myndina.  Veðjar bara á mengandi stóriðju.  Skammsýni stjórnmálamanna er okkur til skaða. Vonandi leiðrétta komandi kosningar þröngsýnina og stýra okkur í rétta átt.

Við höfum ekki lengur efni á þaulsetnum pólítíkusum sem eru með höfuðin föst í sjávarútvegi og landbúnaði.  Svo margt annað er í boði.  Sérstaklega hvað varðar netið og umsjá þess.  Hvernig væri að opna augun!

Skápaflokkar

Sögur ganga í hæstu hæðum Hollywood að John Travolta og Tom Cruise séu skápahommar.  Og hvað með það!  Verra að þeir mega ekki koma út úr skápnum vegna tengsla sinna við Vísindakirkjuna.  Hollywood er jafn þröngsýnt.

Stofnandi safnaðarins mátti reyndar sitja undir svipuðum kjaftasögum. Bandaríkjamenn eru alveg stórkostlegir með þennan feluleik sinn gagnvart kynhneigð.  Sérstaklega Republikanar.

Svona svipað og Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn.  Er einhver þar innanborðs opinberlega kominn út úr skápnum?  Nú er almenn vitneskja að vissir þekktir aðilar íhaldssins eru samkynhneigðir.  Óþarfi að nefna nokkur nöfn.

Ég gæti aldrei kosið flokk hvers meðlimir mega ekki vera þau sjálf. Umburðarlyndi samfélagsins ætti að vera orðið nóg fyrir fólk til að segja skilið við skápinn fyrir fullt og allt.  En nei, ekki hjá afturhaldsflokkunum tveimur.