Survival of the fittest

Kosningar eftir rúman mánuð og Facebook er byrjuð að fyllast af stuðningsyfirlýsingum þeirra sem ætla sér að kjósa Framsókn og Sjálfstæðisflokkinn.  Minni fólks er slakt.  Þau meika ekki annað kjörtímabil tiltektar.  Vilja komast strax aftur í eyðslu og sukk út á lánsfé.

Ráðdeild fyrri kynslóða er löngu glötuð.  Viðleitni vinstri flokkana síðasta kjörtímabil við að taka til eftir veisluna var ekki vel tekið af lýðnum.  Fylleríið skal halda áfram þrátt fyrir timburmenn og tóm veski.

Guð hjálpi Íslandi ef hrunflokkarnir tveir komast aftur í stjórn!  Til þess að standa við loforð sín verða þeir að leggja niður alla velferð í landinu.  Fólk mun svelta heilu hungri án menntunar og heilsugæslu.  Survival of the fittest.

Gettu MR

Ótrúlegt en satt!  MR vann Gettu betur.  Kemur virkilega á óvart.  Lengi framan af er þessi keppni nokkuð spennandi en þegar nær dregur úrslitum verður ljóst að sami sveitti skólinn mun standa uppi með sigurpálmann eins og venjulega.

Er ekki kominn tími til að setja þessa keppni á salt um tíma!  MR tekur hana greinilega aðeins of alvarlega meðan aðrir líta á keppnina sem skemmtun.

Peði fórnað fyrir drottningu

Íslenskar kosningar skila alltaf sömu niðurstöðunni.  Sama hvað við kjósum. Hér verður aldrei nein breyting til batnaðar vegna þess að þjóðin er upp til hópa fávitar sem kjósa sömu spillingarpésana og síðast.

Sérhvert nýtt framboð gerir það eitt að éta fylgið af Samfylkingunni og Vinstri-Grænum og með því tryggja enn frekar að Silfurskeiðabandalag Sjálfstæðismanna og Framsóknarflokks mun ná völdum eftir kosningar.

Allt vegna þessarar fáranlegu 5% reglu um kjörfylgi hvers framboðs sem gerir það að verkum að atkvæði greidd smáu flokkunum falla sjálfkrafa dauð niður og undirbúa jarðveginn fyrir hrunflokkana að kjötkötlunum.

Nema náttúrulega að fólk ranki við sér og kjósi eins og það sé að tefla skák. Stundum þarf að fórna peði til að drepa drottningu.  Kjósa áfram hina norrænu velferðastjórn í þeirri trú að þeim takist að ljúka ætlunarverkinu á næsta kjörtímabili.

Því ljóst er að íhaldið og fjósafasistarnir munu aldrei ná því með loforðum sínum um allt fyrir alla.  Er ekki hægt samtímis að lækka skatta og lækka kostnað við rekstur ríkissins.  Slíkt gengur víst gegn öllum hagfræðikenningum.