Sannleikurinn er sár

Eflaust er það gott karma að greiða fullt af peningum í þróunaraðstoð. Jafnvel þó við séum á hvínandi kúpunni og þurfum að taka upphæðina að láni á okurvöxtum til þess eins að sýnast í útlöndum.

Tvær Framsóknarkonur bentu nýlega á þessa staðreynd og hafa verið krossfestar í kjölfarið í netheimum.  Sannleikurinn svíður sárt.  Við viljum ekki heyra hann borinn fram án blekkinga.

Vinnan göfgar manninn

Merkilegt nokk!  Eftir fjögurra ára eyðimerkurgöngu hef ég verið ráðinn til sex mánaða í gegnum Liðsstyrk við Þjóðskjalasafn Íslands við skjalaflokkun. Er spenntur því starfið er skylt sagnfræðináminu sem ég á enn eftir að klára. Fyrsta skipti sem ég starfa við eitthvað tengt námi mínu.

Hver veit nema að starfið leiði til þess að ég ljúki loks B.A. gráðunni fyrir fimmtugt?  Vitaskuld er ég smá kvíðinn enda ekki verið í vinnu síðastliðin fjögur ár.  Verður skrítið og erfitt í fyrstu.  En velkomið.  Er orðinn hundleiður á hangsinu.

Því miður!

Kastaði upp á kassann í gær þegar heilaþvegið ungviðið þuldi upp lygaþvælu íhaldsins í annarri sjónvarpsauglýsingu kosningavorsins.  Sú fyrsta kom frá krötum þar sem spurt var hvort að maður vilji borga einu sinni eða tvisvar fyrir íbúðina sína.

Annar flokkurinn lofar upp í ermina á sér og hinn er búinn að gleyma 110% leiðinni og kröfuhöfunum sem keyptu bankana á slikk með samþykki ríkisstjórnarinnar.  Örvæntingin skín úr þessum rándýru framboðum meðan Framsókn siglir á lygnum sjó með sitt 28,5% fylgi í könnunum.

Fólk leitar í það sem það þekkir.  Fylgið flakkar á milli fjórflokkanna og kannski smá til fimmta framboðsins; Bjartrar framtíðar.  Fjósafasistarnir endurnýjuðu sig best eftir hrunið.  Stóðu keikir í Icesave og gáfu aldrei eftir eins og Bjarni Ben. á síðustu metrunum.

Þrátt fyrir Kögunarformanninn sem ætlar sér að bæta við fjölskylduauðinn austur á fjörðum með Kínagulli og málhalta og nær rasíska Vigdísi Hauksdóttur þá bætist fylgið við flokkinn í hverri könnun sem birtist. Framsókn talar nefnilega tungu alþýðunnar án tæknikratísku og grillgræðgi.

Ætíð þegar búið er að afskrifa blessað sveitaíhaldið þá rís það upp aftur eins og Fönix úr öskunni og sigrar á ný.  Ljóst er að flokkurinn verður í næstu stjórn.  Hvort heldur til hægri eða vinstri.  Íslendingar eru lítið fyrir nýjungar á stjórnmálasviðinu.

Því miður!

Sjálfur er ég að gæla við þá hugmynd að kjósa Dögun.  Hef enga trú á besta framsóknarkratagrautnum Bjartri framtíð.  Píratar eru líka inn í myndinni en eru kannski aðeins of miklir pönkarar fyrir minn smekk.