Hvíl í friði

Líkræður voru haldnar yfir stjórnarskrárfrumvarpinu í gær og það lagt til hvílu að eilífu.  Ég er núna enn ákveðnari en áður að kjósa ekki Samfylkinguna.  Og hið sama gildir um Bjarta Framtíð og Vinstri-Græna. Þarna kom ykkar rétta eðli fram!

Sýnir sig bara að fulltrúalýðræðið er fullreynt á Íslandi.  Kominn tími til að leggja Alþingi niður og koma á fót beinu lýðræði í gegnum netið.  Þetta lið niður við Austurvöll veldur ekki hlutverki sínu.  Enda flest á spenanum hjá einhverjum.

Veðrið

Haltu á ketti hvað það var gaman úti í veðrinu og snjónum.  Þrælaði mér út í fæðisleit þegar aðeins fór að lygna.  Flaug þrisvar á hausinn og sneri öklann en það skemmdi ekki fyrir.

Einn jeppakarlinn stöðvaði og bauð mér far.  Hefur sennilega vorkennt mér. Ég svaraði til að það væri allt of gaman úti í snjónum til að sitja í bíl og afþakkaði því farið.

Skil ekki vælið í fólki. Ef bíllinn festist þá er nærtækast að nota lappirnar til að komast á milli staða.  Vont veður í miðri borg er ekki það sama og óveður út í óbyggðum.  Litlar líkur á að við verðum úti í mannmergðinni.

Samanburðarlöndin

„Í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við, Noregi og Svíþjóð, er aðgengi að áfengi svipað og hér“ jarmar kórinn sem sér ofsjónir yfir því að fullorðið fólk fái sér í glas endrum og eins.

Af hverju erum við alltaf að bera okkur saman við leiðinlegri Norðurlöndin? Vorum við ekki undir stjórn Dana?  Af hverju erum við ekki líkari þeim?  Hvað er að því að selja áfengi í matvöruverslunum og miða innkaupaaldurinn við 18 ára aldur?

Hér er allt að drukkna í eiturlyfjum og eina svar stjórnvalda er að hækka verð á áfengi enn frekar og herða sóknina gegn sjálfþurftarbúskap nokkurra hasshausa.  Ættu frekar að þakka þeim fyrir að spara gjaldeyrir þjóðarinnar.

Stríðið gegn áfenginu tapaðist í Chicago á fjórða áratug síðustu aldar. Stríðið gegn eiturlyfjum er einnig löngu tapað.  Kominn tími til að lögleiða draslið og skattleggja.  Taka stjórnina úr höndum glæpamanna og losna við ofbeldið. Ekki það að pólítíkusar séu eitthvað minna glæpahyski.