Skipulögð glæpasamtök

Fyrir mér eru stjórnmálaflokkar lítið annað en skipulögð glæpasamtök. Sérstaklega Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur sem hafa skipt á milli sín gæðum landssins áratugum saman.

Í Þýskalandi er nasistaflokkurinn bannaður.  Mér finnst leitt að við skulum ekki hafa bannað íhaldið og fjósafasistana eftir hrunið.  Þessir flokkar leiddu okkur til glötunar rétt eins og fótgönguliðar Hitlers.

Síðustu fjögur ár voru okkur erfið en merkilegt nokk erum við eina landið sem er að rísa úr öskunni í Evrópu eftir hrunið.  Og hvernig gerðum við það? Með vinstri stjórn.  Hægri stjórn hefði endanlega sökkt íslensku samfélagi. Og mun því miður takast það eftir komandi kosningar.

Fólk er fífl!  Þið fáið það sem þið kjósið.  Ekki fara að væla þegar hrunflokkarnir falla í sama far og áður og taka til við að mergsjúga samfélagið.  Þegar þeir taka til við að svíkja kosningarloforðin og sigla okkur inn í nýtt hrun.

Þjóð jarmandi sauða

Fæ alltaf hroll þegar birtast myndir frá sértrúarsöfnuði þeim sem nú heldur landsfund niður í Laugardalshöll.  Minnir mig svo illilega á samkomur nasista á fjórða áratug síðustu aldar í Þýskalandi.  Heill sé þér formaður vor!  Heil Bjarni!

Þarna sitja sautjánhundruð og eitthvað sauðir jarmandi sama sönginn: 2007, 2007, tvöþúsundogsjö.  Við viljum fá 2007 aftur svo við getum farið að eyða eins og apaheilar og endurnýjað Reinsana okkar.

Verst er að meira en þriðjungur þjóðarinnar ætlar að kjósa þessa vitleysinga yfir sig í vor.  Og fimmtungur Framsókn svo að það er eins gott að fara undirbúa sig undir næsta hrun.  Ekki eignast neitt og alls ekki safna í séreignarsparnað sem mun bara brenna upp á græðgisbáli þeirra sem vilja græða á daginn og grilla á kvöldin.

Eitt vinstra kjörtímabil dugir ekki til að laga þá brunarúst sem var skilin eftir átján ára stjórn íhaldssins.  Trúum ekki þessu rugli.  Hér verður ekkert hægt að lækka skatta á næstunni.  Eða byggja nýtt sjúkrahús.  Peningarnir eru ekki til og enginn vill lána okkur þá eins og fyrir hrun.

Bjarni talar bara með rassgatinu á sér.  Klæjar að komast í stjórn til að leggja niður Sérstakan saksóknara og Fjármálaeftirlitið.  Svo mun hann jarða drögin að nýrri stjórnarskrá og fara í Landsdómsmál við Steingrím og Jóhönnu fyrir að hafa farið í dómsmál gegn Geir Haarde.

Ég sé óveðursskýin hrannast upp við sjóndeildarhringinn.  Dökk og dimm með ásjónur Bjarna og Sigmundar Davíðs glottandi við tönn og græðgisblik í augum.

Guð hjálpi Íslandi, því ekki gerum við það sjálf, þessi þjóð jarmandi sauða á leið til slátrunar.

Í þyngri kantinum

http://www.dv.is/lifsstill/2013/2/17/horfa-a-hana-med-fyrirlitningu/

Rosalega skil ég þessa konu vel.  Mæti sömu viðbrögðum þegar ég hlunkast um á tveimur jafnfljótum um höfuðborgarsvæðið.  Í stað þess að gleðjast yfir að bolla eins og ég hreyfi mig, setur liðið upp fyrirlitningarsvip og hlær að mér.

Verst er fólkið í bílunum.  Það bendir og skellihlær þegar það brunar framhjá. Flautar stundum á mig.  Hvað er að þessu fólki!  Má ég ekki vera til eins og þau?.